Forsíða  > Einstaklingar  > Afslættir, bætur og frádrættir  > Persónuafsláttur
Veftré   A- A+

Persónuafsláttur

Almennt

Við ákvörðun á tekjuskatti samkvæmt skattframtali er tekið tillit til þeirra skattafslátta sem skattþegn á rétt á samkvæmt VI. kafla laga nr. 90/2003 um tekjuskatt. Persónuafsláttur ákvarðast samkvæmt ákvæðum A-liðar 67. gr. laganna en persónuafslátt geta menn nýtt sér á staðgreiðsluári með framvísun skattkorts til launagreiðanda.

Allir sem náð hafa 16 ára aldri á tekjuárinu og eru heimilisfastir á landinu eiga rétt á persónuafslætti. Sama gildir um þá sem hafa rétt til að halda hér á landi skattalegu heimili þrátt fyrir dvöl erlendis vegna náms eða veikinda. Hjá þeim sem ná 16 ára aldri á tekjuárinu reiknast fullur persónuafsláttur fyrir allt árið.

Persónuafsláttur er kr. 44.205 á mánuði á árinu 2010

Persónuafsláttur var kr. 42.205 á mánuði á árinu 2009
Persónuafsláttur var kr. 34.034 á mánuði á árinu 2008
Persónuafsláttur var kr. 32.150 á mánuði á árinu 2007
Persónuafsláttur var kr. 29.029 á mánuði á árinu 2006
Persónuafsláttur var kr. 28.321 á mánuði á árinu 2005
Persónuafsláttur var kr. 27.496 á mánuði á árinu 2004
Persónuafsláttur var kr. 26.825 á mánuði á árinu 2003
Persónuafsláttur var kr. 26.002 á mánuði á árinu 2002
Persónuafsláttur var kr. 25.245 á mánuði á árinu 2001
Persónuafsláttur var kr. 24.510 á mánuði á árinu 2000 (apríl-desember)
Persónuafsláttur var kr. 23.912 á mánuði á árinu 2000 (jan.-mars)
Persónuafsláttur var kr. 23.329 á mánuði á árinu 1999
Persónuafsláttur var kr. 23.360 á mánuði á árinu 1998

Útreikningur

Fjárhæð persónuafsláttar 2010 er samtals 530.466 kr. Við ákvörðun staðgreiðslu opinberra gjalda frá og með 1. janúar 2010 skal því draga persónuafslátt frá reiknuðum skatti sem hér segir:

Ef launatímabil er einn mánuðurkr.44.205
Ef launatímabil er hálfur mánuðurkr.22.102
Ef launatímabil er fjórtán dagarkr.20.346
Ef launatímabil er ein vikakr.10.173

Ef launatímabil er annað en að framan greinir skal ákvarða persónuafslátt launatímabils þannig:

Kr. 530.466X dagafjöldi launatímabilsins
365

Persónuafsláttur í álagningu

Við álagningu opinberra gjalda kemur persónuafsláttur til lækkunar á reiknuðum tekjuskatti ársins. Það sem ekki nýtist til lækkunar á reiknuðum tekjuskatti gengur til greiðslu útsvars. Sá persónuafsláttur sem þá er eftir fellur niður hjá einhleypingum og sérsköttuðu sambúðarfólki.

Millifærsla persónuafsláttar

Hjá hjónum og hjá pörum í staðfestri samvist færist allur (100%) óráðstafaður persónuafsláttur vegna tekjuársins 2010 til maka og kemur til lækkunar á reiknuðum tekjuskatti eða gengur til greiðslu á útsvari.

Millifærsla persónuafsláttar var:
100% vegna tekjuársins 2003 og síðar
95% vegna tekjuársins 2002
90% vegna tekjuársins 2001
85% vegna tekjuársins 2000
80% vegna tekjuársins 1999

Sama gildir um sambúðarfólk sem hefur heimild til samsköttunar og skilar sameiginlegu skattframtali. Skili sambúðarfólk ekki sameiginlegu skattframtali millifærist persónuafsláttur ekki.

Skilyrði fyrir samsköttun

Karl og kona sem búa saman í óvígðri sambúð eiga rétt á samsköttun óski þau þess bæði skriflega við skattyfirvöld. Með óvígðri sambúð er átt við sambúð karls og konu sem skráð er í þjóðskrá enda eigi þau barn saman eða von á barni saman eða sambúðin hefur verið skráð í samfellt eitt ár hið skemmsta. Sama gildir um sambúð einstaklinga af sama kyni. Umsókn um samsköttun skilist til skattstjóra. Hún þarf að vera skrifleg og undirrituð af báðum.

Staðfest samvist

Ef tveir einstaklingar af sama kyni búa í staðfestri samvist njóta þeir sömu réttinda og hjón hvað varðar samnýtingu persónuafsláttar. Þeir fá einnig sams konar framtöl og hjón og þurfa ekki að sækja um samsköttun.

Persónuafsláttur miðast við dvalartíma

Flytjist menn til eða frá landinu á tekjuárinu, reiknast persónuafsláttur fyrir þann tíma sem þeir voru hér heimilisfastir. Við útreikning á persónuafslætti er miðað við dagafjölda á dvalartímanum.

Persónuafsláttur á dánarári

Hjá þeim sem látast á árinu og láta ekki eftir sig maka reiknast persónuafsláttur til dánardags.

Nýting persónuafsláttar látins maka

Eftir andlát annars hjóna eða annars sambúðaraðila (þegar um er að ræða sambúðarfólk sem uppfyllt hefur skilyrði fyrir samsköttun), er eftirlifandi maka heimilt að nýta persónuafslátt hins látna í níu mánuði, talið frá og með andlátsmánuði. Falli maki frá í maí eða síðar á árinu, færist réttur til nýtingar á hluta persónuafsláttar hans yfir áramót. Reglur um millifærslu persónuafsláttar á þessu níu mánaða tímabili eru þær sömu og gilda um millifærslu persónuafsláttar hjá hjónum.

Skipting persónuafsláttar á launatímabil

Persónuafslætti á staðgreiðsluári er skipt jafnt niður á alla mánuði ársins. Launatímabil geta verið styttri en einn mánuður, þ.e. 1/2 mánuður, 14 dagar, vika eða styttri ef því er að skipta. Ekkert launatímabil getur þó verið lengra en einn mánuður.

Þegar launagreiðandi tekur við skattkorti launþega skal hann láta hann njóta fulls persónuafsláttar fyrir launatímabilið að frádregnu því sem kann að hafa verið nýtt hjá fyrri launagreiðanda fyrir sama tímabil.

Launagreiðanda er heimilt að taka tillit til persónuafsláttar, sem samkvæmt áritun síðasta launagreiðanda á bakhlið skattkortsins, hefur ekki verið nýttur það sem af er árinu.

Vantar þig aðstoð?

Deila á Facebook