Forsíða  > Einstaklingar  > Skattar og gjöld  > Tekjuskattur og útsvar  > Tekjuskattur og útsvar
Veftré   A- A+

Tekjuskattur og útsvar einstaklinga

Skattur af tekjum einstaklinga skiptist annars vegar í tekjuskatt til ríkisins sem lagður er á samkvæmt lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt, og hins vegar í útsvar til sveitarfélaga sem lagt er á samkvæmt lögum nr. 4/1995, um tekjustofna sveitarfélaga.

Skyldu til að greiða tekjuskatt og útsvar bera allir þeir sem afla tekna á Íslandi, þeir sem búsettir eru hér á landi bera fulla skattskyldu af tekjum sínum, en þeir sem búsettir eru erlendis og hafa héðan tekjur bera takmarkaða skattskyldu sem nær eingöngu til tekna sem þeir afla hér. Um skattskyldu einstaklinga er fjallað í 1. grein laga nr. 90/2003. Þeir sem skattskyldir eru samkvæmt þeirri grein eru einnig útsvarsskyldir, sbr. 19. grein laga nr. 4/1995.

Þeir sem eru heimilisfastir á Íslandi bera tekjuskatt sem er 24,1% af tekjuskattsstofni að 2.400.000 kr., 27% af tekjuskattsstofni á milli 2.400.000 kr. og 7.800.000 og 33% af tekjuskattsstofni umfram 7.800.000 kr. Hjá þeim sem bera hér takmarkaða skattskyldu ræðst skatthlutfallið eftir tegund tekna, 15, 18 eða 32,7%. Hlutfall útsvars ræðst af ákvörðun sveitarfélagsins sem gjaldþegn er búsettur í. Á árinu 2010 er lágmarksútsvar 11,24% en hámarksútsvar 13,28%. Börn yngri en 16 ára hafa sérstakt frítekjumark og greiða 6% af tekjum sem fara yfir frítekjumarkið í skatt, þ.e. 4% tekjuskatt og 2% útsvar. Börn eiga ekki rétt á persónuafslætti. Sjá bækling um álögð opinber gjöld rsk 12.02

Tekjuskattsstofn er ákvarðaður samkvæmt framtali, þ.e. tekjur að teknu tilliti til frádráttar. Um skattskyldar tekjur einstaklinga er fjallað í 7. grein laga nr. 90/2003 og um frádrátt frá tekjum er fjallað í 30. grein sömu laga. Útsvar er einnig lagt á tekjuskattsstofn. Álagning og uppgjör tekjuskatts og útsvars fer fram í lok júlí ár hvert. Linkur á bæklinginn álögð opinber gjöld rsk 12.02

Á fjármagnstekjur er lagður á 18% tekjuskattur, sbr. C-lið 7. greinar laga nr. 90/2003, sjá nánar um fjármagnstekjuskatt.

Tekjuskattur og útsvar eru innheimt í staðgreiðslu, þ.e. á því ári sem teknanna er aflað. Staðgreiðsluhlutfall er 37,22% af fyrstu 200.000 kr. í staðgreiðslustofn á mánuði, 40,12 % af næstu 450.000 kr. og 46,12% af stofni umfram 650.000 kr. á mánuði. Tekjuskattur er 24,1% í fyrsta skattþrepi, 27% í öðru skattþrepi og 33% í þriðja skattþrepi. Meðalútsvar sem bætist við tekjuskattshlutfallið er 13,12%. Frá reiknuðum tekjuskatti er dreginn persónuafsláttur en auk hans fá launþegar, sem stunda sjómannsstörf á íslensku skipi eða skipi sem gert er út af íslensku skipafélagi, sjómannaafslátt dreginn frá reiknuðum tekjuskatti. Skattleysismörk taka mið af persónuafslætti og staðgreiðsluhlutfalli. Hjá börnum er staðgreiðsluhlutfallið 6% af tekjum sem eru umfram frítekjumark.

Atvinnurekandi dregur staðgreiðsluna af launum launþegans og skilar til innheimtumanns ríkissjóðs. Til að atvinnurekandi geti tekið tillit til persónuafsláttar við afdrátt staðgreiðslu þarf hann að hafa undir höndum skattkort launþegans.

Ítarefni

Vantar þig aðstoð?

Deila á Facebook