Forsíða  > Einstaklingar  > Skattskylda  > Dánarbú
Veftré   A- A+

Dánarbú

Við andlát stofnast sérstök skattskylda dánarbús viðkomandi einstaklings. Dánarbú eru lögaðilar og bera sjálfstæða skattskyldu samkvæmt 5. tölul. 1. mgr. 2. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, og fer álagning á þau eftir álagningarreglum sem gilda um lögaðila, þ.e. tekjuskattur með því álagningarhlutfalli sem mælt er fyrir um í 1. mgr. 71. gr. nefndra laga.

Ástæða er til að vekja sérstaka athygli á því að munur er á skattlagningu íbúðarhúsnæðis eftir því hvort það er í eigu manna eða dánarbúa.

Ákvæði um skattfrelsi söluhagnaðar íbúðarhúsnæðis sem fram koma í 1. mgr. 17. gr. áðurnefndra laga eiga eingöngu við þegar selt er íbúðarhúsnæði sem er í eigu manna á söludegi en ekki þegar um er að ræða sölu íbúðarhúsnæðis í eigu lögaðila, þ.e. söluhagnaður íbúðarhúsnæðis sem selt er eftir andlát en fyrir skiptalok dánarbús er ekki skattfrjáls. Skiptir þá engu máli hversu lengi hinn látni hefur átt íbúðina. Hins vegar færist þessi réttur yfir til erfingja eftir skiptalok, hafi íbúðin ekki verið seld og telst söluhagnaður skattfrjáls í hendi þeirra ef íbúðin er þá seld og samtals eignahaldstími hins látna og erfingja er yfir 2 ár.

Vantar þig aðstoð?

Deila á Facebook