Framtalsgögn vegna áritunar á skattframtöl.
Lýsing fyrir hugbúnaðarhús
Yfirlit
Þessi lýsing er gerð fyrir tæknifólk sem sér um skil upplýsinga frá fjármála- og lánastofnunum til ríkisskattstjóra. Hér er átt við banka, sparisjóði, lífeyrissjóði, fjármögnunarfyrirtæki og aðra þá aðila sem skila upplýsingum til áritunar á skattframtöl. Nánari tímasetningar á skilunum má finna á vef ríkisskattstjóra en gert er ráð fyrir að skilum sé lokið í eigi síðar en 10. febrúar ár hvert. Gert er ráð fyrir að gögnum sé skilað til ríkisskattstjóra á diskum eða þau send í tölvupósti. Mælt er með að gögn í tölvupósti séu dulkóðuð (WinZip, 7-Zip). Æskilegt er að öll skil séu samkvæmt þessari lýsingu í XML formi. Mælst er til þess að þeir aðilar sem hafa fram til þessa skilað Excel- texta- eða csv skrám leitist við að breyta skilamáta sínum. Áfram verður þó fyrst um sinn tekið við skrám sem ekki falla undir þessa skilgreiningu.
Tekið skal fram að hér er fyrst og fremst um að ræða tæknilega lýsingu þó að leitast hafi verið við að hafa lýsingar einstakra svæða
eins nákvæmar og unnt er. Í framtalsleiðbeiningum hvers árs má finna nánari skýringar og reglur um hvernig einstök svæði skulu útfyllt.
Eldri lýsingar (framtalsyfirlit, fasteignalán og önnur lán) eru úreltar. Þau skil skulu nú vera samkvæmt þessari skilgreiningu.
Lýsingar á eldri skilum verða hafðar aðgengileglegar fyrst um sinn:
Bankaupplýsingar/framtalsyfirlit.
Fasteignalán..
Önnur lán
Í breytingasögu
má finna upplýsingar um breytingar sem gerðar hafa verið á þessari lýsingu.
Breytingasagan er aðgengileg sem efnisstraumur (RSS) sem hægt er að tengjast og fá skilaboð þegar henni er breytt.
Kerfislýsing.
XML sniðið er skilgreint í einu heildarskjali sem er skipt í einstaka kafla og undirkafla.
Sérstök lýsing er á þeim villuprófunum sem unnt er að gera við innlestur ásamt
XML sniði (schema) fyrir þær.
Hér fyrir neðan er yfirlitsmynd sem sýnir uppbyggingu þeirra upplýsinga sem skila þarf. Allir kaflarnir eru valkvæmir (optional) þannig að hver
stofnun skilar einungis þeim köflum sem við á.
Meðfylgjandi eru nokkur dæmi um XML skjöl:
Allir kaflar eru útfylltir.
Fasteignalán frá lífeyrissjóði.
Bílalán frá fjármögnunarfyrirtæki
Ábendingar.
Í prófunum og í fyrri skilum hafa komið upp nokkur atriði sem þykir rétt að benda sérstaklega á hérna:
Mínus tölur eru aldrei leyfðar.
Auðkennisnúmer í kaflanum fyrir viðskiptastofnun verður að vera 4 stafir, ekki fleiri og ekki færri. Gert er ráð fyrir að ríkisskattstjóri úthluti þessu auðkenni.
Kaflarnir verða að vera í sömu röð og tilgreint er í sniðinu (schema). Dæmi: Kaflinn HlutabrefKaup verður að koma á undan kaflanum HlutabrefSala.
Vidskiptastofnun
| Svæðisheiti | Lýsing svæðis | Villuprófun |
|---|---|---|
| Framtalsar | Árið sem framtalið er gert. Dæmi: 2010 vegna tekna á árinu 2009. Svæðið verður að vera 4 tölustafir. | TegNum_4. Athugað er hvort svæðið sé 4 á lengd og að það innihaldi ekki annað en tölustafi. Stakið verður að vera til staðar. |
| Audkennisnumer | Auðkennisnúmer viðskiptastofnunar: 4 stafir. Fyrir bankastofnun er þetta bankanúmer. Lífeyrissjóðir hafa auðkennið Lnnn þar sem nnn er númer lífeyrissjóðs. | TegString_4. Athugað er hvort svæðið sé 4 á lengd. Stakið verður að vera til staðar. Ríkisskattstjóri úthlutar auðkennisnúmeri til annarra stofnana í samráði við þær. |
| AudkennislykillRSK | AudkennislykillRSK: Auðkennislykill úthlutaður af RSK sem notaður er til þess að auðkenna sendanda. | TegNum_1_12. Athugað er hvort svæðið sé 1 til 12 stafir á lengd. Stakið verður að vera til staðar. |
| KennitalaStofnunar | Kennitala viðskiptastofnunar: 10 stafa kennitala. | TegKennitala. Stakið verður að vera til staðar. Kennitalan er villuprófuð frekar við innlestur í gagnagrunn RSK. |
Vidskiptamaður
| Svæðisheiti | Lýsing svæðis | Villuprófun |
|---|---|---|
| KennitalaVidskiptamanns | 10 stafa kennitala framteljanda/viðskiptamanns. | TegKennitala. Kennitalan er villuprófuð frekar við innlestur í gagnagrunn RSK. Stakið verður að vera til staðar. |
InnstaedurInnlendar
Kafli 3.1 í framtali: Innstæður í innlendum bönkum og sparisjóðum.
Þegar um er að ræða bankareikninga sem eru í skuld en
hafa gefið vexti á árinu kemur 0 í stakið Innstaeda en stökin Vaxtatekjur og Stadgreiðsla
eru fyllt út. Reikningur sem er í skuld eða hefur borið vaxtagjöld á árinu er tilgreindur í undirkaflanum SkuldirOgVaxtagjold.
Þegar fleiri en eitt skattþrep eru á árinu (2009) skal tilgreina heildarupphæð vaxtatekna og staðgreiðslu ársins í stökin Vaxtatekjur og Stadgreidsla.
Í kaflanum Threp skal tilgreina þann hluta sem fellur til síðari hluta ársins (júlí til desember). Athugið að hér er um að ræða upphæðir sem eru "þar af"
og eru innifaldar í heildarupphæðunum.
Á árinu 2009 eru tvö þrep í gildi og skal setja vaxtatekjur og staðgreiðslu síðari hluta ársins (júlí til desember) í undirkaflann Threp.
| Svæðisheiti | Lýsing svæðis | Villuprófun |
|---|---|---|
| Banki | Bankanúmer eins og það er skilgreint af Reiknistofu bankanna, 4 stafir. Ef stofnun notar ekki númerakerfi RB skal setja 0000 í svæðið. | TegString_4: Athugað er hvort lengdin á svæðinu sé 4 stafir. Stakið verður að vera til staðar. |
| Hb | Höfuðbók númer eins og hún er skilgreind af Reiknistofu bankanna, 2 stafir. Ef stofnun notar ekki númerakerfi RB skal setja 00 í svæðið. | TegString_2: Athugað er hvort lengdin á svæðinu sé 2 stafir. Stakið verður að vera til staðar. |
| ReikningurNumer | Númer bankareiknings. Ef stofnun notar ekki reikningsnúmer skal setja 000000 í svæðið. | TegString_1_6: Athugað er hvort lengdin á svæðinu sé á bilinu 1 til 6 stafir. Stakið verður að vera til staðar. |
| Lysing | Lýsing bankareiknings: Allt að 60 stafa texti sem færður verður á skattframtal. Gert er ráð fyrir að hér komi fram nægar upplýsingar til að framteljandi geti áttað sig á hvaða bankareikning um er að ræða. Algengt er að setja hér heiti reiknings (til dæmis: Gjaldeyrisreikningur USD) og BBBB-HH-XXXXXX þar sem BBBB er bankanúmer, HH er höfuðbók númer og XXXXXX er númer reiknings. | TegString_1_60: Athugað er hvort lengdin á svæðinu sé á bilinu 1 til 60 stafir. Stakið verður að vera til staðar. |
| Innstaeda | Löng heiltala. Ef innstæða er á reikningi í lok tekjuárs er sú upphæð tilgreind hér. Ef reikningur er í skuld í árslok skal setja 0 í svæðið og tilgreina tilgreina upphæðina í kafla 5.5. | TegUpphaed: Svæðið verður að innihalda tölustafi og verður að vera 0 eða hærra. Stakið verður að vera til staðar. |
| Vaxtatekjur | Löng heiltala. Hér skal tilgreina heildar vaxtatekjur ársins. Vaxtagjöld skulu tilgreind í kafla 5.5. | TegUpphaed: Svæðið verður að innihalda tölustafi og verður að vera 0 eða hærra. Stakið verður að vera til staðar. |
| Stadgreidsla | Staðgreiðsla af vaxtatekjum: Löng heiltala. Hér skal tilgreina heildar afdregna staðgreiðslu af vaxtatekjum ársins. | TegUpphaed: Svæðið verður að innihalda tölustafi og verður að vera 0 eða hærra. Stakið verður að vera til staðar. |
Hér kemur lýsing á undirkaflanum Threp. Hér skal tilgreina þann hluta vaxtatekna og staðgreiðslu sem tilheyra öðru skattþrepi. Á tekjuárinu 2009 eru tvö þrep í gildi og skal setja vaxtatekjur og staðgreiðslu síðari hluta ársins (júlí til desember) í undirkaflann Threp. Ef sama skattþrep gildir allt árið þarf ekki að tilgreina þennan kafla. Á tekjuárinu 2009 verður þessi kafli að vera með. Ef engar vaxtatekjur eða staðgreiðsla falla á síðari hluta ársins skal setja 0 í upphæðasvæðin. Athugið að hér er um að ræða upphæðir sem eru "þar af" og eru innifaldar í heildarupphæðunum.
| Svæðisheiti | Lýsing svæðis | Villuprófun |
|---|---|---|
| HeitiThreps | Setja textann TharAf15 í þetta svæði. | TegThrep: Athugað er hvort lengdin á svæðinu sé 8 og það innihaldi textann TharAf15. Stakið verður að vera til staðar. |
| Vaxtatekjur | Löng heiltala. Hér skal tilgreina vaxtatekjur þrepsins. | TegUpphaed: Svæðið verður að innihalda tölustafi og verður að vera 0 eða hærra. Stakið verður að vera til staðar. |
| Stadgreidsla | Löng heiltala. Hér skal tilgreina staðgreiðslu þrepsins. | TegUpphaed: Svæðið verður að innihalda tölustafi og verður að vera 0 eða hærra. Stakið verður að vera til staðar. |
Fasteignalan:
| Svæðisheiti | Lýsing svæðis | Villuprófun |
|---|---|---|
| KennitalaLanseiganda | 10 stafa kennitala. | TegKennitala. Stakinu má sleppa. Kennitalan er villuprófuð frekar við innlestur í gagnagrunn RSK. Ef stakið er haft með er þessi kennitala notuð sem kennitala lánveitanda á sundurliðunarblaði og til að sækja nafn lánveitanda í kafla 5.2 á skattframtali, annars er notuð kennitala stofnunar úr kaflanum "Vidskiptastofnun". |
| Banki | Bankanúmer eins og það er skilgreint af Reiknistofu bankanna, 4 stafir. Ef stofnun notar ekki númerakerfi RB skal setja 0000 í svæðið. | TegString_4: Athugað er hvort lengdin á svæðinu sé 4 stafir. Stakið verður að vera til staðar. |
| Hb | Höfuðbók númer eins og hún er skilgreind af Reiknistofu bankanna, 2 stafir. Ef stofnun notar ekki númerakerfi RB skal setja 00 í svæðið. | TegString_2: Athugað er hvort lengdin á svæðinu sé 2 stafir. Stakið verður að vera til staðar. |
| LanNumer | Númer láns. | TegString_1_6: Athugað er hvort lengdin á svæðinu sé á bilinu 1 til 6 stafir. Stakið verður að vera til staðar. |
| Lantokudagur | Útgáfudagur láns, átta stafa dagsetning á forminu ÁÁÁÁMMDD. Dæmi: 20051201. | TegDagsetning: Dagsetninging er villuprófuð frekar við innlestur í gagnagrunn RSK. Stakið verður að vera til staðar. |
| TegundVisitolu | Tegund vísitölu: Lengd: 1 stafur, textasvæði. L: Lánskjaravísitala 1. jún.75 = 100. B: Byggingavísitala 1. okt.75 = 100. E: Byggingavísitala 1. nóv.55 = 100. T: Sérstök vísitala byggingasjóðs. N: Neysluverðsvísitala. A: Önnur vísitölutrygging (t.d. erl. Gjaldm.) |
TegString_1: Svæðið verður að vera einn á lengd. Stakinu skal sleppa ef lánið er ekki verðtryggt. |
| Grunnvisitala | Grunnvísitala: 7 stafa rauntala með einum aukastaf.Dæmi: 1002.5. | TegNum_7_1: Verður að vera allt að 7 stafa númer með einum aukastaf. Stakinu skal sleppa ef lánið er ekki verðtryggt. |
| HlutfallVerdtryggingar | Hlutfall verðtryggingar: 3 stafa rauntala. Dæmi: 60. Þetta á eingöngu við gömul byggingasjóðslán sem voru verðtryggð að hluta. Stakinu skal sleppa fyrir öll önnur lán. | Decimal: Svæðið verður að innihalda tölustafi. |
| Vaxtaprosenta | Vaxtaprósenta lánsins: 7 stafa rauntala með 4 aukastöfum. Dæmi: 4.1500. | TegNum_7_4: Verður að vera allt að 7 stafa númer með fjórum aukastöfum. Stakið verður að vera til staðar. |
| Greidslumanudir | Greiðslumánuðir: textasvæði. Mánuðir með gjalddaga láns. Dæmi: 3,6,9,12, Mánaðarl. | TegString_1_15: Athugað er hvort lengdin á svæðinu sé á bilinu 1 til 15 stafir. Stakið verður að vera til staðar. |
| UpphaflegurLanstimi | Upphaflegur lánstími: 3 stafa tölusvæði með einum eða engum aukastaf. Lengd láns í árum. Dæmi: 40, 2,5. | Decimal: Svæðið verður að innihalda tölustafi. Þessu staki má sleppa ef ekki eru til upplýsingar um upphaflegan lánstíma. |
| UpphaflegLansupphaed | Upphafleg lánsfjárhæð í heilum krónum: Löng heiltala. Upphafleg fjárhæð láns við útgáfu skuldabréfs. | TegUpphaed: Svæðið verður að innihalda tölustafi. Stakið verður að vera til staðar. |
| Lantokukostnadur | Lántökukostnaður í heilum krónum: Löng heiltala. Heildar lántökukostnaður þar með talin stimpilgjöld. Hér skal tilgreina uppgreiðslugjald og gjald vegna yfirtöku. | TegUpphaed: Svæðið verður að innihalda tölustafi. Stakinu má sleppa. |
| Heildargreidslur | Heildargreiðslur tekjuárs í heilum krónum: Löng heiltala. Vextir, verðbætur og dráttarvextir. Ef enginn gjalddagi er á tekjuári skal setja 0 í svæðið. | TegUpphaed: Svæðið verður að innihalda tölustafi. Stakið verður að vera til staðar. |
| AfborgunNafnverds | Afborgun nafnverðs í heilum krónum: Löng heiltala. Ef enginn gjalddagi er á tekjuári skal setja 0 í svæðið. | TegUpphaed: Svæðið verður að innihalda tölustafi. Stakið verður að vera til staðar. |
| UppreiknadarEftirstodvar | Uppreiknaðar eftirstöðvar láns í lok tekjuárs í heilum krónum: Löng heiltala. Vanskil eiga ekki að vera með í þessari tölu. Ef lán er uppgreitt á tekjuári skal setja 0 í svæðið. | TegUpphaed: Svæðið verður að innihalda tölustafi. Stakið verður að vera til staðar. |
| Vanskil | Vanskil í heilum krónum: Löng heiltala. Hér skal setja heildarupphæð vanskila eins og þau eru í lok tekjuárs. | TegUpphaed: Svæðið verður að innihalda tölustafi. Stakinu má sleppa. |
| Drattarvextir | Dráttarvextir í heilum krónum: Löng heiltala. Samtala dráttavaxta í lok tekjuárs. Dráttarvextir skulu vera innifaldir í heildargreiðslu ársins. | TegUpphaed: Svæðið verður að innihalda tölustafi. Stakinu má sleppa. |
| Vaxtagjold | Vaxtagjöld tekjuárs í heilum krónum: Löng heiltala. Heildargreiðslur - uppreiknuð afborgun af nafnverði. Ef lánið er ekki lán vegna kaupa eða byggingar íbúðarhúsnæðis til eigin nota er þetta sú upphæð sem fer í vaxtagjöld í kafla 5.5. | TegUpphaed: Svæðið verður að innihalda tölustafi. Stakið verður að vera til staðar. |
| FastanumerVedstadar | Fastnúmer veðstaðar: 7 stafa textasvæði. Auðkennisnúmer Fasteignamats ríkisins. | TegString_1_7: Athugað er hvort lengdin á svæðinu sé á bilinu 1 til 7 stafir. Stakinu má sleppa. |
| Vedheiti | Veðheiti: Allt að 30 stafa textasvæði. Heiti fasteignar t.d. Götuheiti og númer. Dæmi: Laugavegur 166. Ef ekki er um að ræða fasteignaveð skal setja hér textann: "Ekki fasteignaveð". | TegString_1_30: Athugað er hvort lengdin á svæðinu sé á bilinu 1 til 30 stafir. Stakinu má sleppa. |
Þegar lán er yfirtekið þarf að uppreikna afborgun af nafnverði samkvæmt vísitölu við dagsetningu yfirtöku. Það er að segja uppreiknaðar afborganir = vísitala yfirtökudagsetningar / grunnvísitölu * afborgun af nafnverði. Í þessum tilvikum verður að fylla út stakið UppreiknadarAfborganir og er það síðan sett í reitinn afborgun í kafla 5.2 á framtali í stað staksins AfborgunNafnverds hér að ofan.
| Svæðisheiti | Lýsing svæðis | Villuprófun |
|---|---|---|
| DagsetningYfirtoku | Dagsetning yfirtöku: 8 stafa dagsetning á forminu ÁÁÁÁMMDD. Dæmi: 20051201. | TegDagsetning: Dagsetninging er villuprófuð frekar við innlestur í gagnagrunn RSK. Stakinu má sleppa. |
| UppruniDagsetningar | Uppruni dagsetningar yfirtöku láns: Einn stafur, textasvæði. Sé uppruni dagsetningar yfirtöku láns ekki kunnur má geta þess
hér. Möguleg gildi: U: Lánið ekki yfirtekið (sama og ef svæðinu er sleppt). K: Dagsetning samkvæmt kaupsamningi A: Dagsetning áætluð. O: Dagsetning ókunn. |
TegString_1: Svæðið verður að vera einn á lengd. Þetta stak hefur verið notað sem viðbótarupplýsingar fyrir eldri lán frá Íbúðalánasjóði og því má sleppa. |
| Yfirtokuvisitala | Vísitala við yfirtöku láns: 7 stafa rauntala með einum aukastaf. Dæmi: 1002.5. | TegNum_7_1: Verður að vera allt að 7 stafa númer með einum aukastaf. Stakinu má sleppa. |
| UppreiknadarAfborganir | Löng heiltala. Afborganir af höfuðstól uppreiknaðar samkvæmt vísitölu yfirtökudags. | TegUpphaed: Svæðiðverður að innihalda tölustafi. Stakinu má sleppa. Ef þetta stak er til staðar og inniheldur ekki 0 er stakið AfborgunNafnverðs ekki notað. |
SkuldirOgVaxtagjold:
Kafli 5.5 á framtali: Skuldir og vaxtagjöld. Kaflinn hér á undan á við þau lán sem koma til greina í kafla 5.2 í framtali, lán vegna kaupa eða byggingar íbúðarhúsnæðis til eigin nota. Þessi kafli á við kafla 5.5 í framtali: Aðrar skuldir og vaxtagjöld, það er lán sem ekki koma til greina við útreikning á vaxtabótum.
| Svæðisheiti | Lýsing svæðis | Villuprófun |
|---|---|---|
| Banki | Bankanúmer eins og það er skilgreint af Reiknistofu bankanna, 4 stafir. Ef stofnun notar ekki númerakerfi RB skal setja 0000 í svæðið. | TegString_4: Athugað er hvort lengdin á svæðinu sé 4 stafir. Stakið verður að vera til staðar. | Hb | Höfuðbók númer eins og hún er skilgreind af Reiknistofu bankanna, 2 stafir. Ef stofnun notar ekki númerakerfi RB skal setja 00 í svæðið. | TegString_2: Athugað er hvort lengdin á svæðinu sé 2 stafir. Stakið verður að vera til staðar. |
| Numer | Númer láns. | TegString_1_6: Athugað er hvort lengdin á svæðinu sé á bilinu 1 til 6 stafir. Stakið verður að vera til staðar. |
| Lysing | Lýsing láns: Allt að 60 stafa texti sem færður verður á skattframtal. Gert er ráð fyrir að hér komi fram nægar upplýsingar til að framteljandi geti áttað sig á því hvaða lán eða bankareikning um er að ræða. | TegString_1_60: Athugað er hvort lengdin á svæðinu sé ekki á bilinu 1 til 60 stafir. Stakið verður að vera til staðar. |
| Vaxtagjold | Vaxtagjöld tekjuárs í heilum krónum, löng heiltala: Vextir, verðbætur og dráttarvextir. | TegUpphaed: Talan verður að vera 0 eða stærri. Stakið verður að vera til staðar. |
| Eftirstodvar | Eftirstöðvar láns eða skuld á reikningi í heilum krónum, löng heiltala. | TegUpphaed: Talan verður að vera 0 eða stærri. Stakið verður að vera til staðar. |
| Fastanumer | Fastanúmer ökutækis: 5 stafa textasvæði. Þetta svæði er einungis fyllt út fyrir ökutækjalán. | TegString_5: Svæðið verður að vera 5 á lengd. Stakinu má sleppa. |
| Rekstrarleiga | Setja skal J í þetta svæði ef um er að ræða ökutæki á rekstraleigu. Ekki skal setja J í svæðið þegar um er að ræða venjulega kaupleigu. | TegUpphaed: Stakið verður að vera 1 stafur á lengd ef það er tilgreint. Stakinu má sleppa. Ef því er skilað með einhverju öðru gildi en J (til dæmis N), eða því er sleppt, er það meðhöndlað eins og ekki sé um rekstrarleigu að ræða. |
| UpprunaAudkenni | Auðkenni lánsins eins og það er skráð hjá sendanda. Ef hægt er að auðkenna það með banka, höfuðbók og reikningsnúmeri má sleppa þessu staki. Annars skal tilgreina hér númer láns eða hverja þá auðkenningu sem gefur láninu einkvæmt númer eða auðkenni. | TegString_1_30: Stakið skal vera 1 til 30 stafir á lengd, því má sleppa. |
VerdbrefOgKrofur:
Kafli 3.3 á framtali: Innlend og erlend verðbréf og kröfur. Stofnsjóðsinneign.
| Svæðisheiti | Lýsing svæðis | Villuprófun |
|---|---|---|
| Lysing | Lýsing verðbréfs, kröfu eða stofnsjóðsinneignar. Allt að 60 stafa texti sem færður verður á skattframtal. Gert er ráð fyrir að hér komi fram nægar upplýsingar til að framteljandi geti áttað sig á því hvaða verðbréf, kröfu eða stofnsjóðsinneign um er að ræða. | TegString_1_60: Athugað er hvort lengdin á svæðinu sé á bilinu 1 til 60 stafir. Stakið verður að vera til staðar. |
| Vaxtatekjur | Heildar vaxtekjur tekjuárs í heilum krónum, löng heiltala: Vaxtatekjur áður en fjármagnstekjuskattur er dregin frá. | TegUpphaed: Talan verður að vera 0 eða stærri. Stakið verður að vera til staðar. |
| Eign | Verðgildi eignar í lok tekjuárs í heilum krónum, löng heiltala. | TegUpphaed: Talan verður að vera 0 eða stærri. Stakið verður að vera til staðar. |
| Stadgreidsla | Heildar staðgreiðsla af fjármagnstekjum: Löng heiltala. Hér skal tilgreina afdregna staðgreiðslu af fjármagnstekjum. | TegUpphaed: Svæðið verður að innihalda tölustafi og verður að vera 0 eða hærra. Stakið verður að vera til staðar. |
Hér kemur lýsing á undirkaflanum Threp. Hér skal tilgreina þann hluta vaxtatekna og staðgreiðslu sem tilheyra öðru skattþrepi. Á tekjuárinu 2009 eru tvö þrep í gildi og skal setja vaxtatekjur og staðgreiðslu síðari hluta ársins (júlí til desember) í undirkaflann Threp. Ef sama skattþrep gildir allt árið þarf ekki að tilgreina þennan kafla. Á tekjuárinu 2009 verður þessi kafli að vera með. Ef engar vaxtatekjur eða staðgreiðsla falla á síðari hluta ársins skal setja 0 í upphæðasvæðin. Athugið að hér er um að ræða upphæðir sem eru "þar af" og eru innifaldar í heildarupphæðunum.
| Svæðisheiti | Lýsing svæðis | Villuprófun |
|---|---|---|
| HeitiThreps | Setja textann TharAf15 í þetta svæði. | TegThrep: Athugað er hvort lengdin á svæðinu sé 8 og það innihaldi textan TharAf15. Stakið verður að vera til staðar. |
| Vaxtatekjur | Löng heiltala. Hér skal tilgreina vaxtatekjur þrepsins. | TegUpphaed: Svæðið verður að innihalda tölustafi og verður að vera 0 eða hærra. Stakið verður að vera til staðar. |
| Stadgreidsla | Löng heiltala. Hér skal tilgreina staðgreiðslu þrepsins. | TegUpphaed: Svæðið verður að innihalda tölustafi og verður að vera 0 eða hærra. Stakið verður að vera til staðar. |
Hlutabref:
Sundurliðunarblað 3.19: Hlutabréf. Upplýsingar samkvæmt þessum kafla um hlutafjáreign í árslok eru færðar á sundurliðunarblað til hagræðis fyrir framteljanda. Þessi kafli getur innihaldið undirkaflana HlutabrefSala og/eða HlutabrefKaup.
| Svæðisheiti | Lýsing svæðis | Villuprófun |
|---|---|---|
| KennitalaFelags | 10 stafa kennitala hlutafélags eða sparisjóðs. | TegKennitala. Kennitalan er villuprófuð frekar við innlestur í gagnagrunn RSK. Stakið verður að vera til staðar. |
| Hér á eftir eru listuð þau stök sem tilheyra hlutafjáreign í árslok og arðgreiðslum ársins. Ef kaup og sala eru send í sérstöku skjali má sleppa þeim, annars verða þau öll að vera til staðar. | ||
| Eign | Verðgildi hlutabréfa eða stofnfjárbréfa í lok tekjuárs í heilum krónum, löng heiltala. | TegUpphaed: Talan verður að vera 0 eða stærri. Stakið verður að vera til staðar. |
| Ardur | Arður af hlutabréfum á tekjuári í heilum krónum, löng heiltala. | TegUpphaed: Talan verður að vera 0 eða stærri. Stakið verður að vera til staðar. |
| Stadgreidsla | Staðgreiðsla af arði eða sölu hlutabréfa: Löng heiltala. | TegUpphaed: Svæðið verður að innihalda tölustafi og verður að vera 0 eða hærra. Stakið verður að vera til staðar. |
| DagsArdgreidslu | Dagsetning greiðslu arðs: Átta stafa dagsetning á forminu ÁÁÁÁMMDD. Dæmi: 20051201. | TegDagsetning: Dagsetningin er villuprófuð frekar við innlestur í gagnagrunn RSK. Stakið verður að vera til staðar. |
HlutabrefKaup:
Þessi undirkafli er undirkafli kaflans Hlutabref. Sundurliðunarblað 3.19: Hlutabréf. Upplýsingar samkvæmt þessum kafla eru færðar á sundurliðunarblað til hagræðis fyrir framteljanda.
| Svæðisheiti | Lýsing svæðis | Villuprófun |
|---|---|---|
| Kaupdagur | Kaupdagur hlutabréfa: Átta stafa dagsetning á forminu ÁÁÁÁMMDD. Dæmi: 20051201. | TegDagsetning: Dagsetninging er villuprófuð frekar við innlestur í gagnagrunn RSK. Stakið verður að vera til staðar. |
| Nafnverd | Nafnverð keyptra hlutabréfa í heilum krónum, löng heiltala: | TegUpphaed: Talan verður að vera 0 eða stærri. Stakið verður að vera til staðar. |
| KaupGengi | Kaupgengi hlutabréfa: Tvínákvæm tala (double precision). | TegUpphaedTvi: Notaðir eru allt að 4 aukastöfum í úrvinnslu þessa svæðis. Stakinu má sleppa. |
| Kaupverd | Kaupverð keyptra hlutabréfa í heilum krónum, löng heiltala. | TegUpphaed: Talan verður að vera 0 eða stærri. Stakið verður að vera til staðar. |
| KennitalaSeljanda | 10 stafa kennitala seljanda hlutabréfa. | TegKennitala. Kennitalan er villuprófuð frekar við innlestur í gagnagrunn RSK. Stakið verður að vera til staðar. |
HlutabrefSala:
Þessi undirkafli er undirkafli kaflans Hlutabref. Sundurliðunarblað 3.19: Hlutabréf. Upplýsingar samkvæmt þessum kafla eru færðar á sundurliðunarblað til hagræðis fyrir framteljanda.
| Svæðisheiti | Lýsing svæðis | Villuprófun |
|---|---|---|
| Soludagur | Söludagur hlutabréfa: Átta stafa dagsetning á forminu ÁÁÁÁMMDD. Dæmi: 20051201. | TegDagsetning: Dagsetningin er villuprófuð frekar við innlestur í gagnagrunn RSK. Stakið verður að vera til staðar. |
| Nafnverd | Nafnverð seldra hlutabréfa í heilum krónum, löng heiltala. | TegUpphaed: Talan verður að vera 0 eða stærri. Stakið verður að vera til staðar. |
| SoluGengi | Sölugengi hlutabréfa: Tvínákvæm tala (double precision). | TegUpphaedTvi: Notaðir eru allt að 4 aukastöfum í úrvinnslu þessa svæðis. Stakinu má sleppa. |
| Soluverd | Söluverð seldra hlutabréfa í heilum krónum, löng heiltala. | TegUpphaed: Talan verður að vera 0 eða stærri. Stakið verður að vera til staðar. |
| KennitalaKaupanda | 10 stafa kennitala kaupanda hlutabréfa. | TegKennitala. Kennitalan er villuprófuð frekar við innlestur í gagnagrunn RSK. Stakið verður að vera til staðar. |
| Kaupar | Kaupár seldra hlutabréfa. Svæðið verður að vera 4 tölustafir. | TegNum_4. Athugað er hvort svæðið sé 4 á lengd og að það innihaldi ekki annað en tölustafi. Stakinu má sleppa. |
ErlendHlutabref:
Sundurliðunarblað RSK 3.19: Hlutabréf. Upplýsingar samkvæmt þessum kafla um hlutafjáreign í árslok eru færðar á sundurliðunarblað til hagræðis fyrir framteljanda. Þessi kafli getur innihaldið undirkaflana ErlendHlutabrefSala og/eða ErlendHlutabrefKaup.
| Svæðisheiti | Lýsing svæðis | Villuprófun |
|---|---|---|
| Lysing | Frjáls texti sem tilgreinir hvaða hlutabréf um er að ræða (til dæmis nafn hlutafélags), allt að 60 stafa texti. | TegString_1_60: Athugað er hvort lengdin á svæðinu sé á bilinu 1 til 60 stafir. Stakið verður að vera til staðar. |
| Land | Hér skal setja tveggja stafa landkóða heimilisfesturíkis hlutafélags samkvæmt staðli ISO 3166. | TegLandKodi:Stakið verður að innihalda gildan landkóða. Stakið verður að vera til staðar. |
| Nafnverd | Nafnverð hlutabréfa í íslenskum krónum eins og það var við kaup. Nafnverð í íslenskum krónum breytist ekki á milli ára. | TegUpphaed: Svæðið verður að innihalda tölustafi og verður að vera 0 eða hærra. Annað stakanna "Nafnverd" og "FjoldiHluta" verður að vera til staðar en ekki bæði. Sú villuprófun fer fram við innlestur í gagnagrunn RSK. |
| FjoldiHluta | Hér skal setja fjölda hluta. | TegUpphaed: Svæðið verður að innihalda tölustafi og verður að vera 0 eða hærra. Annað stakanna "Nafnverd" og "FjoldiHluta" verður að vera til staðar en ekki bæði. Sú villuprófun fer fram við innlestur í gagnagrunn RSK. |
| Kaupverd | Verðgildi hlutabréfa í lok tekjuárs í íslenskum krónum, löng heiltala. Færa skal kaupverð hlutabréfa sem útgefin eru í erlendum gjaldmiðli á gengi eins og það var þegar hlutabréfin voru keypt. Kaupverð er því óbreytt í krónutölu á milli ára. | TegUpphaed: Talan verður að vera 0 eða stærri. Stakinu má sleppa. |
| Ardur | Arður af hlutabréfum á tekjuári í íslenskum krónum, löng heiltala. Arð skal færa á kaupgengi þess tíma þegar hann var greiddur út. | TegUpphaed: Talan verður að vera 0 eða stærri. Stakinu má sleppa. |
| DagsArdgreidslu | Dagsetning útborgunar arðs: Átta stafa dagsetning á forminu ÁÁÁÁMMDD. Dæmi: 20051201. | TegDagsetning: Dagsetninging er villuprófuð frekar við innlestur í gagnagrunn RSK. Stakinu má sleppa. |
| ErlendStadgreidsla | Staðgreiðsla sem dregin er af arðgreiðslunni í heimalandi félags. Þessi fjárhæð er einungis til upplýsinga. Framteljandi getur sett þessa fjárhæð í athugasemdir á eyðublaði 3.19. | TegUpphaed: Talan verður að vera 0 eða stærri. Stakinu má sleppa. |
ErlendHlutabrefKaup:
Þessi undirkafli er undirkafli kaflans ErlendHlutabref. Sundurliðunarblað 3.19: Hlutabréf. Upplýsingar samkvæmt þessum kafla eru færðar á sundurliðunarblað til hagræðis fyrir framteljanda.
| Svæðisheiti | Lýsing svæðis | Villuprófun |
|---|---|---|
| Seljandi | 10 stafa kennitala seljanda. Ef seljandi er erlendur aðili sem ekki hefur íslenska kennitölu skal setja "9999999999" í svæðið. | TegKennitala. Kennitalan er villuprófuð frekar við innlestur í gagnagrunn RSK. Stakið verður að vera til staðar. |
| Vidskiptadagur | Viðskiptadagur hlutabréfa: 8 stafa dagsetning: AAAAMMDD. Hér er tilgreindur sá dagur sem viðskiptin áttu sér stað. | TegDagsetning: Dagsetningin er villuprófuð frekar við innlestur í gagnagrunn RSK. Stakið verður að vera til staðar. |
| Nafnverd | Nafnverð hlutabréfa í íslenskum krónum. | TegUpphaed: Svæðið verður að innihalda tölustafi og verður að vera 0 eða hærra. Annað stakanna "Nafnverd" og "FjoldiHluta" verður að vera til staðar en ekki bæði. Sú villuprófun fer fram við innlestur í gagnagrunn RSK. |
| FjoldiHluta | Hér skal setja fjölda keyptra hluta. | TegUpphaed: Svæðið verður að innihalda tölustafi og verður að vera 0 eða hærra. Annað stakanna "Nafnverd" og "FjoldiHluta" verður að vera til staðar en ekki bæði. Sú villuprófun fer fram við innlestur í gagnagrunn RSK. |
| Gengi | Hér skal skrá gengi þeirra hlutabréfa sem viðskiptin eiga sér stað með: Tvínákvæm tala (double precision). | TegUpphaedTvi: Notaðir eru allt að 4 aukastöfum í úrvinnslu þessa svæðis. Stakinu má sleppa. |
| ErlentKaupverd | Kaupverð í erlendri mynt. Ef viðskiptin eru í erlendri mynt skal færa erlent kaupverð hér. | TegUpphaed: Svæðið verður að innihalda tölustafi og verður að vera 0 eða hærra. Stakið verður að vera til staðar. |
| MyntKodi | Ef um er að ræða viðskipti með erlend hlutafélög skal skrá þriggja bókstafa myntkóða hér samkvæmt staðli ISO 4217. | TegMyntKodi: Stakið verður að innihalda gildan myntkóða. Stakið verður að vera til staðar. |
| Myntgengi | Ef um er að ræða viðskipti með erlend hlutabréf skal setja myntgengi hér: Tvínákvæm tala (double precision). | TegUpphaedTvi: Notaðir eru allt að 6 aukastöfum í úrvinnslu þessa svæðis. Stakinu má sleppa. |
| Kaupverd | Verð hlutabréfa í íslenskum krónum. | TegUpphaed: Svæðið verður að innihalda tölustafi og verður að vera 0 eða hærra. Stakið verður að vera til staðar. |
ErlendHlutabrefSala:
Þessi undirkafli er undirkafli kaflans ErlendHlutabref. Sundurliðunarblað 3.19: Hlutabréf. Upplýsingar samkvæmt þessum kafla eru færðar á sundurliðunarblað til hagræðis fyrir framteljanda.
| Svæðisheiti | Lýsing svæðis | Villuprófun |
|---|---|---|
| Kaupandi | 10 stafa kennitala kaupanda. Ef kaupandi er erlendur aðili sem ekki hefur íslenska kennitölu skal setja "9999999999" í svæðið. | TegKennitala. Kennitalan er villuprófuð frekar við innlestur í gagnagrunn RSK. Stakið verður að vera til staðar. |
| Vidskiptadagur | Viðskiptadagur hlutabréfa: 8 stafa dagsetning: AAAAMMDD. Hér er tilgreindur sá dagur sem viðskiptin áttu sér stað. | TegDagsetning: Dagsetningin er villuprófuð frekar við innlestur í gagnagrunn RSK. Stakið verður að vera til staðar. |
| Nafnverd | Nafnverð hlutabréfa í íslenskum krónum. | TegUpphaed: Svæðið verður að innihalda tölustafi og verður að vera 0 eða hærra. Annað stakanna "Nafnverd" og "FjoldiHluta" verður að vera til staðar en ekki bæði. Sú villuprófun fer fram við innlestur í gagnagrunn RSK. |
| FjoldiHluta | Hér skal setja fjölda seldra hluta. | TegUpphaed: Svæðið verður að innihalda tölustafi og verður að vera 0 eða hærra. Annað stakanna "Nafnverd" og "FjoldiHluta" verður að vera til staðar en ekki bæði. Sú villuprófun fer fram við innlestur í gagnagrunn RSK. |
| Soluverd | Verð hlutabréfa í íslenskum krónum. | TegUpphaed: Svæðið verður að innihalda tölustafi og verður að vera 0 eða hærra. Stakið verður að vera til staðar. |
| Kaupar | Kaupár seldra hlutabréfa. Svæðið verður að vera 4 tölustafir. | TegNum_4. Athugað er hvort svæðið sé örugglega 4 á lengd og að það innihaldi ekki annað en tölustafi. Stakinu má sleppa. |
EydubladRSK315:
Eyðublað 3.15: Sala/innlausn verðbréfa. Sjá nánar leiðbeiningar
fyrir eyðublað 3.15 þar sem fram kemur nákvæm lýsing á einstökum upphæðarreitum
ásamt upplýsingum um upphafsverð markaðsverðbréfa og gengi hlutdeildarskírteina.
Þegar þessum kafla er skilað þarf að gæta vel að því að tilgreina ekki vaxtatekjur og staðgreiðslu líka í kaflanum VerdbrefOgKrofur. Upplýsingum samkvæmt
eyðublaði 3.15 er summerað upp í kafla 3.3 á framtali og þar af leiðandi má ekki tilgreina þær þar.
| Svæðisheiti | Lýsing svæðis | Villuprófun |
|---|---|---|
| LysingBrefs | Lýsing selds bréfs/Hvaða bréf var selt? Allt að 60 stafa textasvæði þar sem fram komi tegund bréfs eða nafn sjóðs. | TegString_1_60: Athugað er hvort lengdin á svæðinu sé á bilinu 1 til 60 stafir. Stakið verður að vera til staðar. |
| AdurVextirAArinu | Áður fengnir vextir á árinu, löng heiltala. | TegUpphaed: Talan verður að vera 0 eða stærri. Stakinu má sleppa. |
| HvenaerSelt | Dagsetning sölu verðbréfs: Átta stafa dagsetning á forminu ÁÁÁÁMMDD. Dæmi: 20051201. | TegDagsetning: Dagsetningin er villuprófuð frekar við innlestur í gagnagrunn RSK. Stakið verður að vera til staðar. |
| HverjumSelt | Hverjum selt: Allt að 60 stafa textasvæði þar sem fram komi nafn kaupanda. | TegString_1_60: Athugað er hvort lengdin á svæðinu sé á bilinu 1 til 60 stafir. Stakinu má sleppa. |
| KennitalaKaupanda | 10 stafa kennitala kaupanda verðbréfa. | TegKennitala. Kennitalan er villuprófuð frekar við innlestur í gagnagrunn RSK. Stakinu má sleppa. |
| Soluverd | Söluverð verðbréfs, löng heiltala. | TegUpphaed: Talan verður að vera 0 eða stærri. Stakið verður að vera til staðar. |
| Stadgreidsla | Afdregin staðgreiðsla af söluhagnaði verðbréfs, löng heiltala. | TegUpphaed: Talan verður að vera 0 eða stærri. Stakinu má sleppa. |
| HvenaerKeypt | Dagsetning kaupa verðbréfs. Átta stafa dagsetning á forminu ÁÁÁÁMMDD. Dæmi: 20051201. | TegDagsetning: Dagsetningin er villuprófuð frekar við innlestur í gagnagrunn RSK. Stakinu má sleppa. |
| AfHverjumKeypt | Af hverjum keypt: Allt að 60 stafa textasvæði þar sem fram komi nafn þess sem verðbréfið var upphaflega keypt af. | TegString_1_60: Athugað er hvort lengdin á svæðinu sé á bilinu 1 til 60 stafir. Stakinu má sleppa. |
| KennitalaSeljanda | 10 stafa kennitala upphaflegs seljanda verðbréfs. | TegKennitala. Kennitalan er villuprófuð frekar við innlestur í gagnagrunn RSK. Stakinu má sleppa. |
| Stofnverd | Upphaflegt kaupverð verðbréfs, löng heiltala. | TegUpphaed: Talan verður að vera 0 eða stærri. Stakinu má sleppa. |
Hér kemur lýsing á undirkaflanum Threp. Hér skal tilgreina þann hluta vaxtatekna og staðgreiðslu sem tilheyra öðru skattþrepi.
Á tekjuárinu 2009 eru tvö þrep í gildi og skal setja vaxtatekjur og staðgreiðslu síðari hluta ársins (júlí til desember) í undirkaflann Threp.
Ef sama skattþrep gildir allt árið þarf ekki að tilgreina þennan kafla. Á tekjuárinu 2009 verður þessi kafli að vera með. Ef engar vaxtatekjur eða staðgreiðsla falla á síðari hluta
ársins skal setja 0 í upphæðasvæðin. Athugið að hér er um að ræða upphæðir sem eru "þar af" og eru innifaldar í heildarupphæðunum.
Ef stakið AdurVextirAArinu er 0 eða er sleppt má sleppa þessum undirkafla.
| Svæðisheiti | Lýsing svæðis | Villuprófun |
|---|---|---|
| HeitiThreps | Setja textann TharAf15 í þetta svæði. | TegThrep: Athugað er hvort lengdin á svæðinu sé 8 og það innihaldi textan TharAf15. Stakið verður að vera til staðar. |
| Vaxtatekjur | Löng heiltala. Hér skal tilgreina vaxtatekjur þrepsins. | TegUpphaed: Svæðið verður að innihalda tölustafi og verður að vera 0 eða hærra. Stakið verður að vera til staðar. |
| Stadgreidsla | Löng heiltala. Hér skal tilgreina staðgreiðslu þrepsins. | TegUpphaed: Svæðið verður að innihalda tölustafi og verður að vera 0 eða hærra. Stakið verður að vera til staðar. |
