Forsíða  > Fagaðilar  > Hugbúnaðarhús  > Gagnaskil, vefþjónusta
Veftré   A- A+

Gagnaskil

Lýsing fyrir hugbúnaðarhús

Yfirlit

Inngangur

Ríkisskattstjóri rekur kerfi til móttöku á gögnum frá launagreiðendum, hlutafélögum og öðrum sem skyldir eru að skila upplýsingum um þriðja aðila. Kerfið er kallað Gagnaskil og þjónar bæði skattstofum og skilaskyldum aðilum. Boðið er upp á skil frá tölvukerfum með vefþjónustu. Einnig býður kerfið upp á notendaviðmót á þjónustusíðu skattsins (skattur.is) þar sem hægt er að skrá þessar upplýsingar. Hér er fjallað um þær vefþjónustur sem í boði eru, hvaða gögnum er hægt að skila með þeim, hvaða kröfur eru gerðar til þeirra gagna og leiðréttingamöguleika eftir skil. Einnig er fjallað um prófunar vefþjónustur sem settar hafa verið upp fyrir hugbúnaðarframleiðendur sem vilja útfæra bein skil úr kerfum sínum.

Þegar byrjað var að nota tölvutæk skil á síðustu öld var það gert með sendingum á textaskrám og sá skilamáti er enn mikið notaður. Á vef ríkisskattstjóra má finna lýsingu á textaskrárskilum. Reynt verður að halda þessari leið opinni eins lengi og það er talið heppilegt en vegna ýmissa takmarkana sem nú þegar eru til staðar og af tæknilegum ástæðum má búast við að lokað verði fyrir þennan skilamáta fyrr en varir. Því eru hugbúnaðarhús og aðrir aðilar sem enn skila textaskrám hvattir til að færa skilin til nútímans sem fyrst.

Kerfislýsing

Í kerfinu er gögnum skipt upp í rökréttar einingar og er sérstök skrá skilgreind fyrir hverja gagnategund. Gögnin eru send sem XML skjöl með SOAP staðlinum. Sérstakt XML snið (schema) er til staðar fyrir hverja gagnategund. Hugbúnaðarframleiðendur geta notað XML sniðin til að sannreyna gögnin áður en þau eru send. XML skjölin eru alltaf borin saman við hlutaðeigandi XML snið (schema) við innlestur. Ef XML skjal stenst ekki þessa prófun er sendingunni hafnað og villuboðum skilað. Ef skjalið er í lagi er það sent í regluprófun sem framkvæmir prófanir á móti gagnagrunnum. Standist gögnin hana er sendingin staðfest, kvittun búin til og gögnin vistuð í kerfinu. Að öðrum kosti eru villuboð send til baka. Aðgangi að skilum er stjórnað með veflyklum fyrir hvern gjaldanda og einnig er einungis tekið við gögnum frá viðurkenndum tölvukerfum. Jafnframt eru takmarkanir á því hvaða tegundum af gögnum hver gjaldandi getur skilað. Til dæmis geta einstaklingar eðlilega ekki skilað hlutafjármiðum.

Lýsingu þessari er skipt upp í kafla þar sem hverri miðategund fyrir sig er lýst ásamt því hvernig einstök atriði tengjast skattframtali. Sérstakur kafli lýsir uppbyggingu XML skjalanna ásamt lýsingu á sameiginlegum svæðum og þeim aðferðum sem eru notaðar við að sannreyna skjölin.

Vefþjónustur

Almennt

Sett hefur verið upp testumhverfi fyrir prófanir á vefþjónustunni:
https://securep.rsk.is/Launamidar/LaunamidarWS/Vefthjonusta.asmx
Til þess að nota vefþjónustuna þarf notandi að fá kennitölu og veflykil hjá ríkisskattstjóra. Ennfremur þarf hann að ákveða, í samráði við hugbúnaðardeild ríkisskattstjóra, útgáfustreng kerfisins. Form útgáfustrengsins gæti verið svona: HeildarLaun V1.2.

Þegar testum er lokið er útbúinn útgáfustrengur fyrir grunn raunþjónustunar:
https://secure.rsk.is/Launamidar/LaunamidarWS/Vefthjonusta.asmx

Á þessum svæðum má finna lýsingu á þeim aðgerðum sem vefþjónustan býður upp á ásamt þeim breytum sem hún tekur við og skilar. Hægt er að prófa XML og senda skjöl í testumhverfinu með því að kalla á sérstaka aðgerð:
https://securep.rsk.is/launamidar/profavefthjonustu/sendaxml.aspx

Högun

Biðlari

Biðlari sendir SOAP/XML skeyti á vefþjónustu sem er staðsett á Vefmiðlara. Sent er yfir SSL sem tryggir öryggi gagnanna. Biðlarinn getur verið í hvaða umhverfi sem er, Unix, Apple, Windows og skrifaður í hvaða forritunarmáli sem er. Forritunarumhverfið sem biðlarinn er skrifaður í þarf einungis að styðja SOAP.

Aðgerðir

Hér er lýsing á þeim aðgerðum sem vefþjónustan býður upp á:

Aðgerð Lýsing aðgerðar
Senda Senda inn xml skrár til RSK. Hér er xml skjalið sent inn sem XmlNode.
SendaStreng Senda inn xml skrár til RSK. Hér er xml skjalið sent inn sem xml strengur.
Villuprofa Senda inn xml skrár til RSK til villuprófunar. Hér er xml skjalið sent inn sem XmlNode og villuprófað.
VilluprofaStreng Senda inn xml skrár til RSK til villuprófunar. Hér er xml skjalið sent inn sem xml strengur.
SaekjaStoduSkila Sækir númer sendinga og stöðu skila á sendingum sem hefur verið skilað, í vinnslu og eytt.
SaekjaSamtoluSendingar Sækir samtölur pr. sendingu eftir launagreiðanda.
SaekjaPrentskra Sækir prentskrá sendingar sem búið er að skila.
SaekjaHeildarSamtoluLaunagreidanda Sækir heildarsamtölur launagreiðanda.
SaekjaAritadarBifreidar Sækja lista af forskráðum bifreiðum eftir kennitölu og tekjuári.

Villuprófanir og uppbygging

Uppbygging XML skjala

Á myndinni hér fyrir neðan má sjá myndrænt hvernig XML skjölin eru byggð upp. Heiti skjalsins er mismunandi eftir miðategundum og má finna í kafla hlutaðeigandi miðategundar.
Fremst í skjalinu kemur auðkenning sem samanstendur af kennitölu launagreiðanda/sendanda ásamt veflykli. Þá koma nokkrar stýribreytur sem segja til um hvað skal gera. Næsti kafli heitir Midi og hefur eigindina (attribute) id sem inniheldur hlaupandi númer fyrir miðana sem kaflinn inniheldur. Hverri tegund miða er lýst í sérstökum kafla. Að lokum kemur samtölukafli. Hér má finna dæmi um XML skjal.

Sameiginleg svæði

Hér er yfirlit yfir þau svæði sem er sameiginleg fyrir alla miða ásamt lýsingu á þeim prófunum sem fara fram til að sannreyna XML skjölin. Öll upphæðasvæði eru sannreynd með TegUpphaed: Svæðið verður að innihalda tölustafi og verður að vera 0 eða hærra.
Neðst í listanum hér að neðan kemur yfirkaflinn Midi ásamt eigindinni id. Fyrsta svæðið í þessum kafla er Kennitala sem er alltaf fyrsta stak kaflans. Önnur stök eru mismunandi eftir tegund miða.

XML heiti Heiti reits Kafli/reitur á framtali
KennitalaLaunagreidanda Kennitala launagreiðanda. TegKennitala:. Svæðið verður að vera útfyllt og 10 stafir að lengd.
Tekjuar Tekjuár. TegNum_4. Svæðið verður að vera útfyllt og á forminu ÁÁÁÁ og verður að vera 4 stafir.
Veflykill Veflykill frá RSK til aðgansstýringar. TegString_6_10. Svæðið verður að vera útfyllt og verður að vera 6 til 10 stafir á lengd.
Tegund Tegund sendingar. Leyfileg gildi eru:
Beint: Skil í vefþjónustu
Vefur: Skil af vef.
RSK: Skil úr forriti RSK
Adgerd Aðgerð. Leyfileg gildi eru:
Nyskra: Nýskráning.
Breyta: Verið er að breyta eða leiðrétta fyrri sendingu. Tilgreina verður bunkanúmer þegar þessi aðgerð er notuð.
BreytaMida: Einungis fyrir Tryggingastofnun ríkisins enn sem komið er.
Bunkanumer Bunkanúmer. Ef aðgerð er Breyta þarf að setja inn bunkanumer
TilForskraningar Til áritunar. Ef á að nota launamiðaskrána til áritunar á framtal (J). Þetta svæði skal hafa gildið J í öllum venjulegum sendingum.
ForritUtgafa Útgáfustrengur forrits sendanda Nafn og útgáfunúmer upprunaforrits t.d. LaunakerfiX 1.0. RSK úthlutar þessum streng, ekki er hægt að senda inn miða nema réttur strengur sé skilgreindur.
Midi Yfirkafli með eigindinni id. Eigindin (attribute) id inniheldur hlaupandi númer miðanna, það byrjar á 1 og endar oftast á sama númeri og fjöldi miðanna er.
Kennitala Kennitala launamanns/móttakanda. TegKennitala:. Svæðið verður að vera útfyllt og 10 stafir að lengd.

Launamiði

Allir geta skilað launamiðum. Þeir innihalda nánast allar upplýsingar um greiðslur launagreiðanda til launþega. Þeir eru einnig notaðir til að gera grein fyrir húsaleigugreiðslum, hlunnindum og fleiru.
Heiti XML skjals: Launamidaskra. Sjá dæmi.
XML snið (schema).

Reitur Heiti reits XML heiti Kafli/reitur á framtali
02 Launatekjur og starfstengdar greiðslur. Laun Kafli 2.1 reitur 21.
03 Lífeyrissjóðsiðgjald til frádráttar. IdgjaldSameignasjodur Kafli 2.6 reitur 162.
IdgjaldSameignasjodur er yfirkafli sem inniheldur svæðin Fjarhaed, NumerLifeyrissjods og Kennitalalifeyrissjods. Tilgreina þarf öll svæðin þegar lífeyrissjóðsiðgjald er tilgreint.
04 Hlutabréfakaup á undirverði. HlutabrefUndirverd Kafli 2.2 reitur 135, önnur hlunnindi.
05 Þar af laun v/fiskveiða. LaunVegnaSjomennsku Sett á sundurliðunarblað. Sá hluti launa sem er greiddur vegna fiskveiða. Þetta er þar af fjárhæð og má þar af leiðandi ekki vera hærri en Laun (reitur 2).
08 Númer lífeyrissjóðs. Sett á sundurliðunarblað. Þessi reitur er einungis tilgreindur í eldri textaskrá.
09 Styrkir til náms, rannsóknar- og vísindastarfa. StyrkirNamRannsoknir Kafli 2.3 reitur 131.
11 Endurgreiddur útlagður kostnaður. EndurgrUtlagdurKostnadur Ekki áritað.
EndurgrUtlagdurKostnadur er yfirkafli sem inniheldur svæðin Fjarhaed og Skyring. Bæði svæðin verða að vera útfyllt.
16 Ökutækjastyrkur. Okutaekjastyrkur Kafli 2.2 reitur 22.
17 Dagpeningar. Dagpeningar Kafli 2.2 reitur 23.
19 Sjúkradagpeningar. Sjukradagpeningar Kafli 2.3: Annað, hvað?
26 Skattfrjálsir vinningar í happdrættum, getraunum og talnaleikjum. SkattfrjalsVerdlaunHappdr Kafli 2.9 reitur 597.
27 Fatahlunnindi. Fatahlunnindi Kafli 2.2 reitur 135: Önnur hlunnindi, hvaða?
28 Húsnæðishlunnindi. Husnaedishlunnindi Kafli 2.2 reitur 135: Önnur hlunnindi, hvaða?
32 Skattskyldir vinningar í happdrættum, getraunum og talnaleikjum. SkattskyldVerdlaunHappdr Kafli 2.3: Annað, hvað?
33 Fæðishlunnindi. Faedishlunnindi Kafli 2.2 reitur 135: Önnur hlunnindi, hvaða?
34 Önnur hlunnindi. OnnurHlunnindi Kafli 2.2 reitur 135: Önnur hlunnindi, hvaða?
OnnurHlunnindi er yfirkafli sem inniheldur svæðin Fjarhaed og Skyring. Bæði svæðin verða að vera útfyllt.
35 Greiðslur frá alþ.st. og staðaruppb. dipl. AlthjodastofnanirStadaruppbot Kafli 2.3: Annað, hvað?
56 Endurgjald til höfunda, rétthafa o.fl. EndurgjaldHofundaRetthafa Kafli 2.3: Annað, hvað?
57 Verkfallsstyrkur. Verkfallsstyrkur Kafli 2.3: Annað, hvað?
58 Björgunarlaun. Bjorgunarlaun Kafli 2.3: Annað, hvað?
59 Skaðabætur og vátryggingafé. SkadabaeturVatryggingafe Kafli 2.3: Annað, hvað?
60 Bifreiðahlunnindi. Bifreidahlunnindi Kafli 2.2 reitur 134.
Bifreidahlunnindi er yfirkafli sem inniheldur svæðið Fjarhaed og gefur möguleika á undirkaflanum BifreidahlunnindiNanar. Fylla verður út Fjarhaed en undirkaflanum má sleppa. Finna má lýsingu á honum í XML sniði (schema) og í dæmi um launamiða.
61 Styrkir og styrktarfé. StyrkirStyrktarfe Kafli 2.3: Annað, hvað?
63 Greitt iðgjald vegna viðbótarlífeyrissparnaðar. IdgjaldSereignasjodur Kafli 2.6 reitur 160.
IdgjaldSereignasjodur er yfirkafli sem inniheldur svæðin Fjarhaed, NumerLifeyrissjods og Kennitalalifeyrissjods. Tilgreina þarf öll svæðin þegar viðbótar lífeyrissjóðsiðgjald er tilgreint.
64 Númer séreignarlífeyrissjóðs. Sett á sundurliðunarblað. Þessi reitur er einungis tilgreindur í eldri textaskrá
65 Heildartekjur af útleigu eigna. Leigutekjur Ekki áritað. Færist í kafla 3.7 reit 521.
66 Jöfnunarstyrkur. Jofnunarstyrkur Kafli 2.9 reitur 73.
71 Afdregin staðgreiðsla. Stadgreidsla Kafli 2.10 reitur 296.
73 Ökutækjastyrkur utan staðgreiðslu. OkutaekjastyrkurUtanStadgreidslu Ekki áritað. Má ekki vera hærri en Okutaekjastyrkur (reitur 16).
74 Dagpeningar utan staðgreiðslu. DagpeningarUtanStadgreidslu Ekki áritað. Má ekki vera hærri en Dagpeningar (reitur 17.)
82 Aðrar skattskyldar greiðslur. AdrarSkattskyldarGreidslur Kafli 2.3: Annað, hvað?
AdrarSkattskyldarGreidslur er yfirkafli sem inniheldur svæðin Fjarhaed og Skyring. Bæði svæðin verða að vera útfyllt.
83 Ráðningardagar. Radningardagar Sett á sundurliðunarblað. Má ekki vera hærri en dagafjöldi tekjuárs (365 eða 366).
87 Sjómannadagar. Logskraningardagar Sett á sundurliðunarblað. Má ekki vera hærri en dagafjöldi tekjuárs (365 eða 366).
93 Aðrar skattfrjálsar greiðslur. AdrarSkattfrjalsarGreidslur Kafli 2.9 reitur 73.
AdrarSkattfrjalsarGreidslur er yfirkafli sem inniheldur svæðin Fjarhaed og Skyring. Bæði svæðin verða að vera útfyllt.

Verktakamiði

Allir geta skilað verktakamiðum. Þeir innhalda einungis eitt atriði, verktakagreiðslur. Athugið að upphæðin er heildargreiðsla til verktaka með virðisaukaskatti.
Heiti XML skjals: Verktakamidi. Sjá dæmi.
XML snið (schema).

Númer Heiti reits XML heiti Kafli/reitur á framtali
06 Verktakagreiðslur með virðisaukaskatti. Verktakagreidsla Eyðublað RSK 1.04, RSK 4.10 eða RSK 4.11.

Hlutafjármiði

Einungis hlutafélög, einkahlutafélög og Evrópufélög geta skilað hlutafjármiðum.
Heiti XML skjals: Hlutafjarmidaskra. Sjá dæmi.
XML snið (schema).

Reitur Heiti reits XML heiti Kafli/reitur á framtali
36 Dagsetning arðgreiðslu. DagsArdgreidslu Í textaskrá skal þetta svæði innihalda dagsetningu í forminu ÁÁÁÁMMDD, XML skjal skal innihalda gilda dagsetningu.
Þessu svæði má sleppa, ef því er sleppt er dagsetningin 31.12. tekjuárs sett í gagnagrunn.
76 Útgefin jöfnunarhlutabréf. Jofnunarhlutabref Eyðublað 3.19
77 Hlutafjáreign í árslok. Hlutafe Eyðublað 3.19 og kafli 3.5
78 Greiddur arður. Ardur Eyðublað 3.19 og kafli 3.5
79 Staðgreiðsla af arði. Stadgreidsla Eyðublað 3.19 og kafli 3.5

Stofnfjármiði

Stofnfjármiðar eru einungis fyrir sparisjóði.
Heiti XML skjals: Stofnfjarmidaskra. Sjá dæmi.
XML snið (schema).

Reitur Heiti reits XML heiti Kafli/reitur á framtali
36 Dagsetning arðgreiðslu. DagsArdgreidslu Í textaskrá skal þetta svæði innihalda dagsetningu í forminu ÁÁÁÁMMDD, XML skjal skal innihalda gilda dagsetningu.
Þessu svæði má sleppa, ef því er sleppt er dagsetningin 31.12. tekjuárs sett í gagnagrunn.
80 Endurmat stofnfjár. Endurmat Eyðublað 3.19
81 Stofnfjáreign í árslok. Stofnfe Eyðublað 3.19 og kafli 3.5
84 Greiddur arður. Ardur Eyðublað 3.19 og kafli 3.5
86 Staðgreiðsla af arði. Stadgreidsla Eyðublað 3.19 og kafli 3.5

Stofnsjóðsmiði

Stofnsjóðsmiðar samvinnufélaga (kaupfélaga). Heiti XML skjals: Stofnsjodsmidaskra.
XML snið (schema).

Reitur Heiti reits XML heiti Kafli/reitur á framtali
13 Arður. Ardur kafli 3.3
15 Vextir. Vextir Kafli 3.3. Þetta eru heildarvextir ársins. Þegar tvö skattþrep eru á árinu (2009) skal tilgreina þann hluta sem féll til fyrir hluta árs í reit 68.
20 Staðgreiðsla. Stadgreidsla Kafli 3.3
23 Stofnsjóður. Stofnsjodur kafli 3.3
24 Tekjuafgangur í stofnsjóð. TekjuafgangurIStofnsjod Kafli 3.3
36 Dagsetning arðgreiðslu. DagsArdgreidslu Í textaskrá skal þetta svæði innihalda dagsetningu í forminu ÁÁÁÁMMDD, XML skjal skal innihalda gilda dagsetningu.
Þessu svæði má sleppa, ef því er sleppt er dagsetningin 31.12. tekjuárs sett í gagnagrunn.
68 Þar af vextir fyrir 1. júlí. TharAfVextirFyrir0107 Kafli 3.3. Hér skal tilgreina áfallna vexti fyrir 1.júlí 2009. Þessi tala er þar af tala, heildarvexti skal tilgreina í reit 15. Þessi upphæð má ekki vera hærri en upphæð í reit 15.
81 Tekjuafgangur greiddur. TekjuafgangurGreiddur Kafli 3.3

Atvinnuleysistryggingasjóður

Sérstök tegund er útfærð fyrir Atvinnuleysistryggingasjóð og deildir hans. Óþarft er að útfæra þessa tegund hjá öðrum aðilum. Einungis er tekið við gögnum af þessari tegund frá Atvinnuleysistryggingasjóði og deildum hans.
Heiti XML skjals: Atvinnuleysisbotaskra. Sjá dæmi.
XML snið (schema).

Reitur Heiti reits XML heiti Kafli/reitur á framtali
03 Lífeyrissjóðsiðgjald. IdgjaldSameignasjodur Kafli 2.6 reitur 162.
IdgjaldSameignarsjodur er yfirkafli sem inniheldur svæðin Fjarhaed, NumerLifeyrissjods og Kennitalalifeyrissjods. Tilgreina þarf öll svæðin þegar lífeyrissjóðsiðgjald er tilgreint.
54 Atvinnuleysisbætur. Atvinnuleysisbaetur Kafli 2.3, reitur 163.
63 Greitt iðgjald vegna viðbótarlífeyrissparnaðar. IdgjaldSereignasjodur Kafli 2.6 reitur 160.
IdgjaldSereignasjodur er yfirkafli sem inniheldur svæðin Fjarhaed, NumerLifeyrissjods og Kennitalalifeyrissjods. Tilgreina þarf öll svæðin þegar viðbótar lífeyrissjóðsiðgjald er tilgreint.
71 Afdregin staðgreiðsla. Stadgreidsla Kafli 2.10 reitur 296.

Lífeyrissjóðamiði

Þessi tegund er fyrir skil á gögnum sem einungis geta komið frá lífeyrissjóðum og koma ekki fram í launamiðategundinni. Einungis lífeyrissjóðir geta skilað lífeyrissjóðamiðum.
Heiti XML skjals: Lifeyrissjodaskra. Sjá dæmi.
XML snið (schema).

Reitur Heiti reits XML heiti Kafli/reitur á framtali
10 Lífeyrisgreiðslur úr séreignarsjóðum. GreiddurSereignarsparnadur Kafli 2.3 reitur 140.
21 Greiðslur úr lífeyrissjóðum. Lifeyrisgreidslur Kafli 2.3 reitur 43.
31 Sérstök útborgun séreignarsparnaðar. SerstokUtborgunSereign Kafli 2.3 reitur 143.
51 Lífeyrisgreiðslur með börnum LifeyrisgreidslurBorn Kafli 2.3 reitur 43.
71 Afdregin staðgreiðsla. Stadgreidsla Kafli 2.10 reitur 296.

Sveitarfélög

Þessi tegund er fyrir skil á gögnum sem einungis geta komið frá sveitarfélögum.
Heiti XML skjals: Sveitarfelagaskra. Sjá dæmi.
XML snið (schema).

Reitur Heiti reits XML heiti Kafli/reitur á framtali
03 Lífeyrissjóðsiðgjald. IdgjaldSameignasjodur Kafli 2.6 reitur 162.
IdgjaldSameignarsjodur er yfirkafli sem inniheldur svæðin Fjarhaed, NumerLifeyrissjods og Kennitalalifeyrissjods. Tilgreina þarf öll svæðin þegar viðbótar lífeyrissjóðsiðgjald er tilgreint.
62 Félagsleg aðstoð. FelagslegAdstodSvfe Kafli 2.3 reitur 197.
63 Greitt iðgjald vegna viðbótarlífeyrissparnaðar. IdgjaldSereignasjodur Kafli 2.3 reitur 43.
IdgjaldSereignasjodur er yfirkafli sem inniheldur svæðin Fjarhaed, NumerLifeyrissjods og Kennitalalifeyrissjods. Tilgreina þarf öll svæðin þegar viðbótar lífeyrissjóðsiðgjald er tilgreint.
67 Húsaleigubætur. Husaleigubaetur Kafli 2.9 reitur 73.
71 Afdregin staðgreiðsla. Stadgreidsla Kafli 2.10 reitur 296.
72 Bætur og styrkir sveitarfélaga. BaeturStyrkirSvfe Kafli 2.3 reitur 197.

Tryggingafélög

Þessi tegund er fyrir skil á bótagreiðslum frá tryggingafélögum og staðgreiðslu þeim tengdum.
Heiti XML skjals: Tryggingafelog. Sjá dæmi.
XML snið (schema).

Reitur Heiti reits XML heiti Kafli/reitur á framtali
69 Skattskyldar greiðslur. TryggingafelogSkattskylt Kafli 2.3: Annað, hvað?
71 Afdregin staðgreiðsla. Stadgreidsla Kafli 2.10 reitur 296.
89 Skattfrjálsar greiðslur TryggingafelogOskattskylt Kafli 2.9, Reitur 73.

Tryggingastofnun

Þessi gagnategund er einungis til nota fyrir Tryggingastofnun ríkisins.
Heiti XML skjals: TRMidaskra. Sjá dæmi.
XML snið (schema).

Reitur Heiti reits XML heiti Kafli/reitur á framtali
47 Þar af skattskylt utan staðgreiðslu. TRUtanStadgreidslu
48 Skattskyldar greiðslur. TRSkattskylt Kafli 2.3 reitur 40.
53 Skattfrjálsar greiðslur TRSkattfrjalst Kafli 2.9 reitur 596.
71 Afdregin staðgreiðsla. Stadgreidsla Kafli 2.10 reitur 296.

Bifreiðahlunnindi

Þessi tegund er fyrir skil á upplýsingum um bifreiðahlunnindi vegna afnota starfsmanna á bifreiðum vinnuveitenda. Heiti XML skjals: Bifreidahlunnindaskra. Sjá dæmi.
XML snið (schema).
Bifreiðahlunnindamiðar eru öðruvísi uppbyggðir en venjulegir launamiðar vegna þess að þeir innihalda, auk fjárhæðar bifreiðahlunnindanna upplýsingar um bifreiðina og hvers konar not starfsmaðurinn hefur af henni (takmörkuð, ótakmörkuð). Sameiginleg svæði eru þó þau sömu og í launamiðum.
Neðst í kaflanum er myndræn lýsing af uppbyggingu skjalsins.

Heiti svæðis XML heiti Villuprófun
Yfirkafli fyrir bifreiðahlunnindi. Bifreidahlunnindi
Fjárhæð bifreiðahlunninda. Fjarhaed TegUpphaed: Svæðið verður að innihalda tölustafi og verður að vera 0 eða hærra.
Yfirkafli fyrir nánari upplýsingar. BifreidahlunnindiNanar
Fjárhæð bifreiðahlunninda. Fjarhaed TegUpphaed: Svæðið verður að innihalda tölustafi og verður að vera 0 eða hærra.
Skráningarnúmer bifreiðar. SkraningarnumerBifreidar Svæðið verður að innihalda gilt fastanúmer. Númerið verður að vera til á ökutækjaskrá.
Matsverð bifreiðar samkvæmt upplýsingum RSK. MatsverdBifreidar TegUpphaed: Svæðið verður að innihalda tölustafi og verður að vera 0 eða hærra.
Yfirkafli fyrir tímabil sem bifreiðin var í rekstri. TimabilIRekstri Kaflinn inniheldur DagsFra og DagsTil
DagsFra Dagsetningin skal vera í forminu ÁÁÁÁ-MM-DD
DagsTil Dagsetningin skal vera í forminu ÁÁÁÁ-MM-DD
Kóði fyrir notkun bifreiðar. NotkunBifreidar 1 = Ótakmörkuð endurgjaldslaus afnot.
2 = Ótakmörkuð afnot gegn greiðslu eldsneytis.
3 = Engin afnot launþega af þessari bifreið.
4 = Ótakmörkuð afnot gegn endurgjaldi.
5 = Takmörkuð afnot.
Yfirkafli fyrir tímabil sem bifreiðin var í notkun launþega. TimabilNotkunar Kaflinn inniheldur DagsFra og DagsTil
DagsFra Dagsetningin skal vera í forminu ÁÁÁÁ-MM-DD
DagsTil Dagsetningin skal vera í forminu ÁÁÁÁ-MM-DD
Geymslustaður bifreiðar utan vinnutíma. Geymslustadur Allt að 30 stafa svæði.
Starf notanda bifreiðar. StarfNotanda Allt að 70 stafa svæði.
Athugasemdir og nánari skýringar. Athugasemdir Allt að 2.000 stafa skýringar og athugasemdir.

Vantar þig aðstoð?

Deila á Facebook