Virðisaukaskattur
Lýsing fyrir hugbúnaðarhús - uppkast í vinnslu.
Yfirlit
Inngangur
Ríkisskattstjóri hefur tekið í notkun nýja vefþjónustu fyrir rafræn skil á virðisaukaskatti. Eldri vefþjónustu verður haldið opninni til 31. desember 2011 en viðhaldi og uppfærslum við hana hefur þó verið hætt. Þeir sem skrifa á móti henni í dag þurfa að huga að því að færa sig yfir í nýju þjónustuna.
Nýja vefþjónustan leyfir skil/leiðréttingar frá og með árinu 2010. Eldri skil en fyrir nýjasta uppgjörstímabilið eru ekki leyfileg. Nú er hægt að færa inn neikvæðar (mínus) fjárhæðir í þrep 24,5% sem er nýjung frá því sem áður var. Eldri vefþjónustan býður ekki uppá þrepin 25,5% og 7% þrep en þau eru nú til, jafnframt er 14% þrepið ekki lengur til staðar.
Kerfislýsing
Lýsingu þessari er skipt upp í kafla þar sem hverri vefþjónustuaðgerð fyrir sig er lýst nákvæmlega en yfirlit yfir allar aðgerðir koma hér á eftir.
Sett hefur verið upp umhverfi fyrir prófanir á vefþjónustunni:
https://securep.rsk.is/Vaskur/WS/VSKThjonusta.svc
Til þess að nota vefþjónustuna í prófunarumhverfi þarf notandi að fá kennitölu og veflykil hjá hugbúnaðardeild ríkisskattstjóra.
Ennfremur þarf notandi að ákveða, í samráði við hugbúnaðardeild ríkisskattstjóra,
útgáfustreng kerfisins. Form útgáfustrengsins gæti verið svona: HeildarVSK V1.2
Þegar prófunum er lokið er útbúinn útgáfustrengur fyrir grunn raunþjónustunar:
https://secure.rsk.is/Vaskur/WS/VSKThjonusta.svc
Yfirlit yfir aðgerðir
Hér er yfirlit yfir þær aðgerðir sem vefþjónustan býður upp á:
| Aðgerð | Lýsing aðgerðar |
|---|---|
| SkilaVSKSkyrslu | Skilar virðisaukaskattsskýrslu. |
| LeidrettaVSKSkyrslu | Leiðréttir virðisaukaskattsskýrslu. |
| VilluprofaVSKSkyrslu | Villuprófar virðisaukaskattsskýrslu. |
| NaIVSKNumer | Sækir VSK númer samkvæmt kennitölu fyrirspurnar. Ef aðilinn er með fleiri en eitt VSK númer er skilað lista yfir þau. |
| NaIVSKUpplysingar | Upplýsingar um skilamáta ofl. |
| NaIYfilysinguRSK | Staðfesting skila - kvittun |
Skila virðisaukaskattsskýrslu.
Heiti aðgerðar: SkilaVSKSkyrslu.
Þessi aðgerð leyfir notanda að skila virðisaukaskattskýrslu fyrir nýjasta uppjörstímabil virðisaukaskatts sem næst er á gjalddaga. Hægt er að skila skýrslu þegar að uppgjörstímabili er lokið og í síðasta lagi 30 dögum eftir gjalddaga viðkomandi uppgjörstímabils.
Svæði sem aðgerðin tekur við:
| Heiti svæðis | Lýsing |
|---|---|
| Kennitala | Kennitala sendanda |
| Veflykill | Veflykill sendanda |
| KerfiUtgafa | Útgáfustrengur hugbúnaðarins sem notaður er. |
| VSKNumer | Virðisaukaskattsnúmer |
| Ar | |
| Timabil | |
| Innskattur | |
| Utskattur | |
| ReiknaAlag | |
| Velta245 | |
| Velta255 | |
| Velta7 | |
| VeltaUndanthegin |
Svæði sem aðgerðin skilar:
| Heiti svæðis | Lýsing |
|---|---|
| Alag | |
| Alagning | |
| Ar | |
| Bankanumer | |
| Gjalddagi | |
| Hofudbok | |
| KrafaStofnud | |
| Krofunumer | |
| KtEigandaKrofu | |
| Kvittun | |
| OCR | |
| Skilad | |
| TilGreidslu | |
| Timabil | |
| Tokst | Segir til um hvort aðgerðin tókst. true/false |
| Villubod | Villuboð sem eru birt ef aðgerðin tókst ekki. |
| VSKNumer |
Leiðrétta virðisaukaskattsskýrslu.
Heiti aðgerðar: LeidrettaVSKSkyrslu.
Notandi getur leiðrétt áður innsenda virðisaukaskattskýrslu sem skilað hefur verið rafrænt. Hægt er að senda inn leiðréttingu svo lengi sem ríkisskattstjóri hefur ekki tekið afstöðu til fyrri skýrslu. Aðeins er hægt að leiðrétta nýjasta uppgjörstímabil árins.
Svæði sem aðgerðin tekur við:
| Heiti svæðis | Lýsing | Villuprófun |
|---|---|---|
| Kennitala | Kennitala sendanda | Kennitalan verður að vera á virðisaukaskattsskrá. |
| Veflykill | Veflykill sendanda | Veflykillinn verður að passa við kennitölu sendanda. |
| KerfiUtgafa | Útgáfustrengur hugbúnaðarins sem notaður er. | Útgáfustrengurinn verður að vera á skrá hjá ríkisskattstjóra. |
Svæði sem aðgerðin skilar:
| Heiti svæðis | Lýsing |
|---|---|
| Tokst | Segir til um hvort aðgerðin tókst. true/false |
| Villubod | Villuboð sem eru birt ef aðgerðin tókst ekki. |
Villuprófa virðisaukaskattsskýrslu.
Heiti aðgerðar: VilluprofaVSKSkyrslu.
Hér er verið að sannreyna innra samræmi milli skattskyldrar veltu og útskatts. Notandi getur ekki skilað skýrslu nema samræmi sé milli veltu og útskatts. Vikmörk á útskatti eru kr. 25. pr. milljón kr. í veltu.
Svæði sem aðgerðin tekur við:
| Heiti svæðis | Lýsing | Villuprófun |
|---|---|---|
| Kennitala | Kennitala sendanda | Kennitalan verður að vera á virðisaukaskattsskrá. |
| Veflykill | Veflykill sendanda | Veflykillinn verður að passa við kennitölu sendanda. |
| KerfiUtgafa | Útgáfustrengur hugbúnaðarins sem notaður er. | Útgáfustrengurinn verður að vera á skrá hjá ríkisskattstjóra. |
Svæði sem aðgerðin skilar:
| Heiti svæðis | Lýsing |
|---|---|
| Tokst | Segir til um hvort aðgerðin tókst. true/false |
| Villubod | Villuboð sem eru birt ef aðgerðin tókst ekki. |
Sækja virðisaukaskattsnúmer
Heiti aðgerðar: NaIVSKNumer.
Hér eru sóttar upplýsingar um öll virðisaukaskattsnúmer sem úthlutað hefur verið á viðkomandi kennitölu.
Svæði sem aðgerðin tekur við:
| Heiti svæðis | Lýsing | Villuprófun |
|---|---|---|
| Kennitala | Kennitala sendanda | Kennitalan verður að vera á virðisaukaskattsskrá. |
| Veflykill | Veflykill sendanda | Veflykillinn verður að passa við kennitölu sendanda. |
| KerfiUtgafa | Útgáfustrengur hugbúnaðarins sem notaður er. | Útgáfustrengurinn verður að vera á skrá hjá ríkisskattstjóra. |
Svæði sem aðgerðin skilar:
| Heiti svæðis | Lýsing |
|---|---|
| Fjoldi | Fjöldi VSK númera í svari. |
| LisitVSKNumer | Listi yfir VSK númer sem fundust. |
| Tokst | Segir til um hvort aðgerðin tókst. true/false |
| Villubod | Villuboð sem eru birt ef aðgerðin tókst ekki. |
Sækja VSK upplýsingar
Heiti aðgerðar: NaIVSKUpplysingar.
Hér eru sóttar upplýsingar um skráningu viðkomandi aðila inn á virðisaukaskattskrá. Sótt er nafn, heimilisfang, póstnúmer, sveitarfélagsnúmer o.s.frv.
Svæði sem aðgerðin tekur við:
| Heiti svæðis | Lýsing | Villuprófun |
|---|---|---|
| Kennitala | Kennitala sendanda | Kennitalan verður að vera á virðisaukaskattsskrá. |
| Veflykill | Veflykill sendanda | Veflykillinn verður að passa við kennitölu sendanda. |
| KerfiUtgafa | Útgáfustrengur hugbúnaðarins sem notaður er. | Útgáfustrengurinn verður að vera á skrá hjá ríkisskattstjóra. |
Svæði sem aðgerðin skilar:
| Heiti svæðis | Lýsing |
|---|---|
| Fjoldi | Fjöldi VSK númera í svari. |
| LisitVSKNumer | Listi yfir VSK númer sem fundust. |
| Tokst | Segir til um hvort aðgerðin tókst. true/false |
| Villubod | Villuboð sem eru birt ef aðgerðin tókst ekki. |
Sækja yfirlýsingu RSK
Heiti aðgerðar: NaIYfirlysinguRSK.
Þessi aðgerð sækir skilmála fyrir umsókn um rafræn skil. Aðeins virkt ef notandi er að votta með rafrænum skilríkjum að umsækjandi sér réttur.
Svæði sem aðgerðin tekur við:
| Heiti svæðis | Lýsing | Villuprófun |
|---|---|---|
| Kennitala | Kennitala sendanda | Kennitalan verður að vera á virðisaukaskattsskrá. |
| Veflykill | Veflykill sendanda | Veflykillinn verður að passa við kennitölu sendanda. |
| KerfiUtgafa | Útgáfustrengur hugbúnaðarins sem notaður er. | Útgáfustrengurinn verður að vera á skrá hjá ríkisskattstjóra. |
Svæði sem aðgerðin skilar:
| Heiti svæðis | Lýsing |
|---|---|
| Fjoldi | Fjöldi VSK númera í svari. |
| LisitVSKNumer | Listi yfir VSK númer sem fundust. |
| Tokst | Segir til um hvort aðgerðin tókst. true/false |
| Villubod | Villuboð sem eru birt ef aðgerðin tókst ekki. |
Tæknileg lýsing vefþjónustunnar
Vefþjónustan notar Windows Communication Foundation (WCF) frá Microsoft. Þar má finna nánari lýsingu á WCF.
WCF þjónustur nota svokallaða "endpoints" og öll samskipti við þjónusturnar fara fram gegnum þá. "Endpoint" samanstendur af "Address" "Binding" og "Contract".
Address er urlið á þjónustunni. Clientar sem nota sér þjónustuna verða að setja slóðina á vefþjónustunni sem þeir ætla að tala við þarna.
Binding er aðferðin sem notuð er við að tala við þjónustuna. Hægt er að nota http(s)/ tcp ofl. máta til að tala við þjónustuna. Þegar þjónustan er hýst á IIS eru samskiptin þó bundin við http(s).
Contract er samningurinn eða Interfacið sem þjónustan útfærir og skilgreinir hvernig skeytin sem fara á milli líta út.
Eins og fram kemur þegar farið er á slóð vefþjónustunnar er sýnt hvernig hægt er að nota svcutil.exe til að búa til client. SvcUtil er hægt að downloada sérstaklega (http://msdn.microsoft.com/en-us/vstudio/aa973758.aspx) en séu menn með VisualStudio 2008 uppsett eiga þeir það til á vélinni sinni.
Fljótlegasta leiðin til að búa til client á WCF þjónustu er að gera Add Service reference (Add web reference er gamla leiðin til að gera þetta) úr VisualStudio og setja inn urlið á vefþjónustunni. Þá er búinn til proxy klasi og web.config eða app.config skrá búin til með nauðslynlegum endpoint stillingum til að tala við þjónustuna. Hér fyrir neðan eru hlekkir á dæmi um endpoint sem verður til við að búinn er til service referenc e á vefþjónustuna í prófun(Umhverfið býr þessar stillingar til):
Stundum þarf að eiga við stillingarnar td. maxReceivedMessageSize og maxArrayLength hef ég þurft að stækka, default gildin í þessu eru frekar lítil af öryggisástæðum. Þar sem þjónustan notar https þá verður til wsHttpBinding sem er notað þegar um er að ræða https. Væri vefþjónustan .asmx þjónusta væri basicHttpBinding notuð. Annað sem vert er að nefna er að security mode = Transport verður að nota þegar um https samskipti er að ræða.
Dæmi um hvernig kallað er í vefþjónustuna (aðgerðina SkilaVSKSkyrslu) þegar búið er að gera Service reference á hana(proxyinn heitir í þessu tilfelli VSKVefthjonustaProxy):
VSKVefthjonustaProxy.VSKVefskilClient vskClient = new VSKVefthjonustaProxy.VSKVefskilClient("WSHttpBinding_VSKVefskil");
VSKVefthjonustaProxy.VSKSkyrsla inntak = new VSKVefthjonustaProxy.VSKSkyrsla();
VSKVefthjonustaProxy.VSKSkyrslaSvar svar = new VSKVefthjonustaProxy.VSKSkyrslaSvar();
//Setja gildi fyrir inntakið
inntak.Kennitala = ThjonustusidurSession.GetKennitala();
inntak.Veflykill = "abc..";
//Kalla í vefþjónustuna og vinna úr svarinu:
svar = vskClient.SkilaVSKSkyrslu(inntak);
vskClient.Close();
return svar;