Reiknivélar
Barnabætur
Með því að skrá inn tekjustofn, fjölskyldustöðu, fjölda barna og tekjuár er hægt að reikna út barnabætur. Athugið að barnabætur eru greiddar eftirá vegna barna sem framteljandi hefur hjá sér í árslok. Einnig þarf að tilgreina hversu mörg barnanna eru yngri en 7 ára í árslok. Ef valið er tekjuárið 2008 reiknast barnabætur sem greiddar eru 2009.
Vaxtabætur
Hér er hægt að reikna út vaxtabætur. Tilgreina þarf fjölskyldustöðu og skrá tekjustofn og eignastofn. Einnig vaxtagjöld af lánum sem tekin hafa verið til öflunar á íbúðarhúsnæði til eigin nota og eftirstöðvar þeirra í árslok
Staðgreiðsla
Hægt að reikna út staðgreiðslu bæði af vikulaunum og mánaðarlaunum. Skrá þarf launafjárhæð, iðgjald í lífeyrissjóð og hlutfall persónuafsláttar sem það skattkort sýnir sem nýtt er hjá launagreiðanda. Einnig er hægt að skrá aðra frádráttarliði til að reikna út útborguð laun.
Bifreiðagjald
Hér er hægt að reikna út bifreiðagjald með því að skrá inn eigin þyngd ökutækis. Einnig er hægt að skipta bifreiðagjaldinu, t.d. ef númer eru lögð inn, ökutæki afskráð eða ef eigendaskipti eiga sér stað.
Kaupverð hlutabréfa
Gera skal grein fyrir kaupverði hlutabréfa á framtali 2006 í kafla 3.5 (reitur 330). Hér er reiknivél til að reikna út heildarkaupverð hlutabréfa í einstöku félagi vegna þess framtals. Færa þarf inn kaupár, kaupverð keyptra hlutabréfa og kaupverð seldra hlutabréfa, ef framteljandi hefur bæði keypt og selt hlutabréf í félaginu. Hafi hlutabréfin verið í eigu framteljanda í árslok 1996 þarf jafnframt að færa inn nafnverð þessara hlutabréfa eins og það var í árslok 1996.
Meðalkaupverð hlutabréfa
Þegar maður selur hluta af hlutabréfaeign sinni í tilteknu hlutafélagi, sem hann hefur eignast á tveimur eða fleiri árum, þarf við sölu þeirra að reikna út meðalkaupverð bréfanna. Hér er reiknivél sem finnur meðalkaupverð hlutabréfa.
Yfirtekin lán
Með því að skrá inn dagsetningu upphaflegrar lántöku, kaupdagsetningu eignar og afborgun á nafnverði er fundinn uppreiknistuðull og reiknuð út afborgun á nafnverði þegar um yfirtekið lán er að ræða.
