Forsíða  > Fagaðilar  > Helstu tölur  > Helstu tölur einstaklinga 2009
Veftré   A- A+

Opinber gjöld einstaklinga 2009

Staðgreiðsla opinberra gjalda 2009
Staðgreiðsla 37,20%
Tekjuskatt 24,10%
Útsvar í staðgreiðslu 13,10%

Hlutfall útsvars er mismunandi eftir sveitarfélögum. Hlutfall útsvars í staðgreiðslu er þó það sama á öllu landinu. Um er að ræða bráðabirgðagreiðslu upp í útsvar í álagningu. Mismunur kann því að vera milli staðgreiðslu og álagningar. Við álagningu er gerð krafa um greiðslu mismunar eða hann endurgreiddur, eftir því sem við á.

Útsvar er greitt til þess sveitarfélags þar sem viðkomandi átti lögheimili 1. desember 2008.

Stofn til útreiknings tekjuskatts og útsvars er hvers kyns endurgjald fyrir vinnu að teknu tilliti til þess frádráttar sem heimilaður er með lögum. Sem dæmi um endurgjald fyrir vinnu eru laun, hlunnindi, styrkir og reiknað endurgjald sem og lífeyrisgreiðslur, bætur og styrkir sem ekki eru sérstaklega undanþegin með lögum. Heimilaður frádráttur frá tekjum er m.a. lífeyrissjóðsiðgjald og frádráttur á móti ökutækjastyrk og dagpeningum eða hliðstæðum endurgreiðslum á kostnaði sem sannað er að séu ferða- og dvalarkostnaður vegna atvinnurekanda og eru í samræmi við matsreglur fjármálaráðherra.

Staðgreiðsla manna með takmarkaða skattskyldu vegna launa 37,20%
Tekjuskatt 24,10%
Útsvar í staðgreiðslu 13,10%

Menn sem koma til Íslands til tímabundinna starfa, þ.e. skemur en 6 mánuði á 12 mánaða tímabili, bera takmarkaða skattskyldu vegna tekna sem þeir afla hér á landi.

Með tekjum er átt við laun, starfstengdar greiðslur, hlunnindi o.s.frv.

Við álagningu er tekið tillit til persónuafsláttar og sjómannaafsláttar hjá þeim sem stunda sjómannsstörf.

Einstaklingar sem búsettir eru á einhverju öðru Norðurlandanna greiða fullan tekjuskatt og útsvar hérlendis vegna eftirlauna eða lífeyrisgreiðslna frá Íslandi. Tekið er tillit til persónuafsláttar á móti slíkum greiðslum. Sama á við um einstaklinga sem búsettir eru í landi sem ekki hefur gert tvísköttunarsamning við Ísland. Að öðru leyti gilda ákvæði tvísköttunarsamninga ef einstaklingur er búsettur í ríki sem gert hefur tvísköttunarsamning við Ísland.

RSK 12.10 - Að starfa á Íslandi tímabundið (242 kb)

Hlutfall útsvars er mismunandi eftir sveitarfélögum. Hlutfall útsvars í staðgreiðslu er þó það sama á öllu landinu. Um er að ræða bráðabirgðagreiðslu upp í útsvar í álagningu. Mismunur kann því að vera milli staðgreiðslu og álagningar. Við álagningu er gerð krafa um greiðslu mismunar eða hann endurgreiddur, eftir því sem við á.

Útsvar manna er bera takmarkaða skattskyldu er greitt til þess sveitarfélags þar sem meirihluta tekna var aflað.

Stofn til útreiknings tekjuskatts og útsvars er hvers kyns endurgjald fyrir vinnu að teknu tilliti til þess frádráttar sem heimilaður er með lögum. Sem dæmi um endurgjald fyrir vinnu eru laun, hlunnindi, styrkir og reiknað endurgjald sem og lífeyrisgreiðslur, bætur og styrkir sem ekki eru sérstaklega undanþegin með lögum. Heimilaður frádráttur frá tekjum er m.a. lífeyrissjóðsiðgjald og frádráttur á móti ökutækjastyrk og dagpeningum eða hliðstæðum endurgreiðslum á kostnaði sem sannað er að séu ferða- og dvalarkostnaður vegna atvinnurekanda og eru í samræmi við matsreglur fjármálaráðherra.Stofn til útreiknings tekjuskatts og útsvars er hvers kyns endurgjald fyrir vinnu að teknu tilliti til þess frádráttar sem heimilaður er með lögum. Sem dæmi um endurgjald fyrir vinnu eru laun, hlunnindi, styrkir og reiknað endurgjald sem og lífeyrisgreiðslur, bætur og styrkir sem ekki eru sérstaklega undanþegin með lögum. Heimilaður frádráttur frá tekjum er m.a. lífeyrissjóðsiðgjald og frádráttur á móti ökutækjastyrk og dagpeningum eða hliðstæðum endurgreiðslum á kostnaði sem sannað er að séu ferða- og dvalarkostnaður vegna atvinnurekanda og eru í samræmi við matsreglur fjármálaráðherra.

Staðgreiðsla manna með takmarkaða skattskyldu vegna þjónustu / starfsemi sem innt er af hendi hér á landi og launa manna sem ekki dvelja hér á landi 28,10%
Tekjuskatt 15,00%
Útsvar í staðgreiðslu 13,10%

Launatekjur sem skattlagðar eru með 15% tekjuskatti:

Laun eða hliðstæðar greiðslur frá íslenskum aðilum til manna sem ekki dvelja hér á landi.

Greiðslur og þóknanir sem skattlagðar eru með 15% tekjuskatti

Greiðslur eða þóknanir til manna, listamanna eða annarra, sem koma fram í atvinnuskyni til skemmtunar og/eða í hvers konar keppni. Njóti menn afraksturs af starfsemi í stað ákveðinna launa eða þóknunar, skal greiða 10% tekjuskatt af heildartekjum án nokkurs frádráttar.

Greiðslur eða þóknanir til lögaðila vegna listamanna eða annarra sem koma fram í atvinnuskyni til skemmtunar eða í hvers konar keppni.

Greiðslur til sjálfstætt starfandi manna fyrir aðra þjónustu og starfsemi.

Greiðslur til lögaðila fyrir aðra þjónustu og starfsemi.

Nánari upplýsingar um takmarkaða skattskyldu.

Staðgreiðsla barna af tekjum umfram 100.745 kr. 6,00%
Tekjuskatt 4,00%
Útsvar 2,00%

Með börnum er átt við einstaklinga yngri en 16 ára. Miðað er við almanaksár (börn fædd 1994 eða síðar).

Börn fá engan persónuafslátt og fá því ekki útgefið skattkort.

Fjármagnstekjuskattur 15,00%
Fjármagnstekjuskattur til 30. júní 2009 10,00%
Fjármagnstekjuskattur frá 1. júlí 2009 15,00%

Stofn til útreiknings skatts á fjármagnstekjur er m.a. vaxtatekjur, verðbætur, afföll, gengishagnaður, arður af hlutabréfum, leigutekjur og skattskyldur söluhagnaður.

Hvorki er lagt á útsvar né önnur gjöld á fjármagnstekjur.

Fjármálafyrirtækjum ber að draga staðgreiðslu af vaxtatekjum og afföllum. Félögum með takmarkaða ábyrgð og samvinnufélögum ber að draga staðgreiðslu af arði. Aðrar tekjur er mynda stofn til fjármagnstekjuskatts einstaklinga eru skattlagðir við álagningu opinberra gjalda næsta ár á eftir tekjuári.

Frá reiknuðum skatti á fjármagnstekjur dragast 10/38 af þeim persónuafslætti sem ekki hefur verið nýttur með öðrum hætti.

Uppgjör staðgreiðslu við álagningu

Við álagningu ákvarðast fjármagnstekjuskattur 10% af öllum fjármagnstekjum sem féllu til á tímabilinu janúar- júní 2009. Fjármagnstekjur sem falla til á tímabilinu júlí-desember 2009 og eru undir kr. 250.000 (kr. 500.000 hjá hjónum) bera sömuleiðis 10% skatt, en á fjármagnstekjur umfram þá upphæð leggst 15% skattur.

Aðrar fjármagnstekjur

Sem fyrr eru tekjur af söluhagnaði skattlagðar eftirá, sem og leigutekjur. Frá 1. júlí gilda sérstakar reglur um leigutekjur, en frá þeim tíma mynda 70% þeirra skattstofn en 30% eru skattfrjálsar.

Nánari upplýsingar um fjármagnstekjuskatt.

Sérstakur tekjuskattur á tekjur umfram kr.700.000 á mánuði. 8,00%

Stofn til sérstaks tekjuskatts (hátekjuskatts) er sá sami og notaður er til að reikna hefðbundna staðgreiðslu; tekjur að frádregnu iðgjaldi í lífeyrissjóði.

Afdráttur staðgreiðslu

Á tímabilinu júlí-desember 2009 skal halda eftir 8% hátekjuskatti af stofni sem er umfram kr. 700.000 á mánuði. Skattinum skal halda eftir við útborgun launa og skila, ásamt annarri afdreginni staðgreiðslu, til innheimtumanns. Halda skal eftir staðgreiðslu vegna hátekjuskatts miðað við tekjum í hverjum mánuði óháð því hverjar þær eru í öðrum mánuðum.

Mánaðarlaun800.000
Iðgjald í lífeyrissjóð32.000
Iðgjald í séreignarsjóð32.000
Stofn til staðgreiðslu736.000
Viðmiðunarm. v/hátekjuskatts700.000
Stofn til hátekjuskatts36.000
Álagningarhlutfall8,00%
Hátekjuskattur2.880

Vikulaun

Þegar laun eru greidd vikulega skal halda eftir 8% hátekjuskatti af stofni umfram kr. 161.096*. Séu vikulaun ýmist innan þessara marka eða yfir þeim, má jafna launum milli vikna innan mánaðarins, en ekki milli mánaða.

*(700.000 x 12/365) x 7 = 161.096 kr.

Skattleysismörk – á mánuði. kr. 113.454
Skattleysismörk á mánuði kr. 113.454
Skattleysismörk á ári kr.1.361.468

Staðgreiðsluskyld laun eftir lífeyrissjóðsfrádrátt.

Erfðafjárskattur 5,00%

Af öllum fjárverðmætum er við skipti á dánarbúi manns ganga til erfingja hans skal greiða 5% erfðafjárskatt í ríkissjóð. Það sama gildir um gjafaarf, dánargjöf, fyrirframgreiddan arf og skilyrtar gjafir.

Engan erfðafjárskatt skal greiða fyrstu kr. 1.000.000 nema um fyrirframgreiðslu arfs er að ræða. Við mat á eignum er almennt miðað við markaðsverðmæti viðkomandi eigna.

Skuldir arfleifanda, þ.m.t. væntanleg opinber gjöld, skulu koma til frádráttar áður en erfðafjárskattur er reiknaður, svo og útfararkostnaður arfleifanda og kostnaður sem nauðsynlegur reynist til að skipta búinu og ákvarða skattstofna.

Séu verðbréf skráð á skipulegum verðbréfamarkaði skal telja þau til eignar á kaupgengi eins og það er skráð við síðustu lokun markaðar fyrir andlát arfleifanda. Ef hlutabréf í félagi eru ekki skráð á skipulegum verðbréfamarkaði skal miða við gangverð þeirra í viðskiptum, annars bókfært verð eigin fjár samkvæmt síðasta endurskoðaða ársreikningi eða árshlutareikningi viðkomandi félags að viðbættum áunnum óefnislegum verðmætum.

Fasteignir (þ.m.t. leigulóðaréttindi) skulu taldar til eignar á fasteignamatsverði eins og það er skrá hjá Fasteignaskrá ríkisins á dánardegi arfleifanda. Sé almennt markaðsverðmæti fasteignar talið lægra er erfingjum heimilt að óska eftir mati skv. lögum um skipti á dánarbúum o.fl. Þegar verðmæti annað en fasteign hefur verið selt nauðungarsölu skal miða við uppboðsandvirði þess.

Búpeningur skal talinn á því verði sem lagt er til grundvallar síðustu álagningu opinberra gjalda fyrir dánardag arfleifanda.

Gjöld við álagningu opinberra gjalda 2009.
Gjald í framkvæmdasjóð aldraðra kr. 7.534

Gjaldið er lagt á alla einstaklinga á aldrinum 16-69 ára í lok árs 2008 (fædd 1939 og síðar) sem eru með tekjuskattsstofn umfram kr. 1.143.362 á árinu 2008.

Elli- og örorkulífeyrisþegar sem eru vistmenn á dvalar- og hjúkrunarheimilum eru undanþegnir gjaldinu.

Útvarpsgjald kr. 17.200

Gjaldið er lagt á alla einstaklinga sem skattskyldur eru skv. 1. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt og þá lögaðila sem skattskyldir eru og bera sjálfstæða skattaðild skv. 2. gr. laga nr. 90/2003, aðra en dánarbú, þrotabú og þá lögaðila sem undanþegnir eru skattskyldu skv. 4. gr. laga nr. 90/2003.

Undanþegnir gjaldinu eru þeir einstaklingar sem ekki skulu sæta álagningu sérstaks gjalds í Framkvæmdasjóð aldraðra eða skulu fá það gjald fellt niður.

Persónuafsláttur
Persónuafsláttur á ári 506.466 kr.
Persónuafsláttur á ári. kr. 506.466
Persónuafsláttur á mánuði. kr. 42.205

Hjá hjónum færist allur óráðstafaður persónuafsláttur til maka og kemur til lækkunar á reiknuðum tekjuskatti eða gengur til greiðslu á útsvari. Sama gildir um sambúðarfólk sem hefur heimild til samsköttunar og skilar sameiginlegu skattframtali.Skili sambúðar fólk ekki sameiginlegu skattframtali millifærist persónuafsláttur ekki.

Börn yngri en 16 ára fá ekki persónuafslátt. Miðað er við almanaksár (börn fædd 1993 eða síðar).

Eftirlifandi maki getur nýtt persónuafslátt hins látna í níu mánuði eftir andlát að andlátsmánuðinum meðtöldum.

Til að menn geti nýtt sér persónuafslátt við ákvörðun á staðgreiðslu á tekjuárinu þurfa þeir að afhenda launagreiðanda skattkort sitt.

Persónuafsláttur reiknast eingöngu þann tíma sem einstaklingur er heimilisfastur hérlendis.

Nánari upplýsingar um persónuafslátt.

Sjómannaafsláttur á dag 987 kr.

Sjómannaafsláttur sem ekki nýtist á móti tekjuskatti fellur niður.

Nánari upplýsingar um sjómannaafslátt.

Frádráttur frá tekjum
Iðgjald í lífeyrissjóð
Lífeyrissjóðsiðgjald 4,00%
Iðgjald vegna viðbótarlífeyrissparnaðar til 28. febrúar 2009 allt að 4,00%
Iðgjald vegna viðbótarlífeyrissparnaðar eftir 1. mars 2009 allt að 6,00%
Ökutækjastyrkur
jan -
Almennt gjald 92 kr./km.
Sérstakt gjald 105,80 kr./km.
Torfærugjald 133,40 kr./km.
Ökutækjastyrkur - hámarksfrádráttur

Ökutækjastyrkur eru greiðslur launagreiðanda til launþega vegna afnota launþega á eigin bifreið í þágu rekstrar launagreiðanda.

Til frádráttar skal leyfa þann hluta af heildarrekstrarkostnaði bifreiðarinnar sem svarar til afnota hennar í þágu launagreiðanda, þó takmarkast frádráttur við leyfðan hámarksfrádrátt samkvæmt skattmati. Aldrei leyfist hærri fjárhæð til frádráttar en talin er til tekna sem ökutækjastyrkur. Afskrift ökutækis sem notað er hluta úr ári reiknast hlutfallslega.

Sérstakt gjald er greitt vegna aksturs á vegum fyrir almenna umferð þar sem ekki er bundið slitlag.

Torfærugjald er greitt vegna aksturs utan vega eða á vegaslóðum sem ekki eru færir fólksbílum.

Gera verður fullnægjandi grein fyrir því að forsendur fyrir greiðslu sérstaks gjalds og torfærugjalds séu uppfylltar.

Nánari upplýsingar ökutækjastyrk.

Afskrift bifreiðar – hámark
Hámark afskrift bifreiðar tekjuárið 2009 kr. 615.000
Dagpeningar
Dagpeningar innanlands

Frádráttur er heimill á móti þeim dagpeningum sem er ætlað að standa undir kostnaði launþegans vegna fjarveru frá heimili sínu, annars vegar vegna gistikostnaðar og hins vegar vegna fæðiskaupa og annars tilfallandi kostnaðar sem af ferðinni hlýst.

Heimild til að draga frá kostnað á móti dagpeningum er bundin eftirfarandi skilyrðum:

  1. Dagpeningarnir hafi verið greiddir vegna tilfallandi ferða á vegum launagreiðandans utan venjulegs vinnustaðar og launþeginn greitt gistingu og fæði og annan ferðatengdan kostnað, svo sem fargjöld að og frá flugvöllum.
  2. Gögn um tilefni ferðar og fjölda dvalardaga, fjárhæð ferðapeninga eða dagpeninga, svo og nafn og kennitala launþega, verða að liggja fyrir í bókhaldi launagreiðanda, sem og hjá launþega.

Nánari upplýsingar um dagpeninga.

Jan - Maí Júní - Október Nóvember -
Gisting og fæði í sólarhring 17.200 kr. 22.132 kr. 18.700 kr.
Gisting í einn sólarhring 10.000 kr. 14.182 kr. 10.400 kr.
Fæði hvern heilan dag (minnst 10 tíma ferðalag) 7.200 kr. 7.950 kr. 8.300 kr.
Fæði hvern hálfan dag (minnst 6 tíma ferðalag) 3.600 kr. 3.975 kr. 4.150 kr.
Dagpeningar erlendis

Sé dvalið skemur en 3 vikur á sama stað er heimilt að draga frá óskerta almenna dagpeninga. Sé dvalið 3 vikur eða lengur á sama stað er heimilt að draga frá óskerta almenna dagpeninga fyrstu vikuna en síðan þjálfunar-, náms-, eða eftirlitsdagpeninga. Fari dvöl erlendis vegna þjálfunar-, náms-, eða eftirlitsstarfa fram úr 3 mánuðum skal frádráttur vegna þjálfunar-, náms-, og eftirlitsdagpeninga lækka um fjórðung þann tíma sem dvalið er lengur en 3 mánuði.

Hafi gisting launþega verið greidd samkvæmt reikningi er honum einungis heimilt að draga fjárhæð samsvarandi “Annað” frá fengnum dagpeningum.

Hafi starfsmaður fengið greidda dagpeninga fyrir samfellda dvöl 30 daga eða lengur skulu viðmiðunarfjárhæðir almennra dagpeninga og vegna þjálfunar-, náms-, eða eftirlitsstarfa lækka um 10 SDR fyrir hvern dag sem dagpeningagreiðslur fara yfir 30 daga samfellt.

Frá tekjum manna af atvinnurekstri eða sjálfstæðri starfsemi er heimilt, í stað þess að ferðakostnaður annar en gisti- og fæðiskostnaður erlendis sé dreginn frá samkvæmt reikningi, að draga frá fasta fjárhæð, sem hæst getur orðið 30% af þeim hluta dagpeninga, sbr. framangreint, sem er vegna annars kostnaðar en gistingar.

Þegar dagpeningar eru umreiknaðir í íslenskar krónur skal miða við sölugengi eins og það var í lok ferðar.

SDR er gjaldmiðlakarfa ákvörðuð af Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Karfan samanstendur af fjórum gjaldmiðlum, bandaríkjadal (USD), bresku pundi (GBP), evru (EUR) og japönsku yeni (JPY). Peningamálasvið Seðlabanka Íslands ákvarðar daglega gengi SDR gagnvart íslensku krónunni.

(Upplýsingar um SDR eru teknar af heimasíðu Seðlabanka Íslands, www.sedlabanki.is)

Almennir Vegna þjálfunar-, náms- eða eftirlitsstarfa
Jan – feb Mars - Jan – feb Mars -
Flokkur 1:
Moskva, New York, Washington DC, Singapúr og Tókýó.
Gisting (SDR) 208 187 133 120
Annað (SDR) 139 125 89 80
Flokkur 2:
Dublin, Istanbúl, Japan (nema Tókýó), London, Lúxemborg, Mexíkóborg og Seúl.
Gisting (SDR) 177 159 113 102
Annað (SDR) 118 106 75 67
Flokkur 3:
Amsterdam, Aþena, Bandaríkin (nema New York og Washington DC), Barcelona, Brussel, Genf, Helsinki, Hong Kong, Kanada, Kaupmannahöfn, Madrid, Osló, París, Róm, Stokkhólmur og Vín
Gisting (SDR) 156 141 100 90
Annað (SDR) 105 94 67 60
Flokkur 4:
Annars staðar
Gisting (SDR) 139 125 89 80
Annað (SDR) 92 83 59 54
Frádráttur vegna gistingar og annars í SDR á dag á móti dagpeningum erlendis ef dvalið er 3 vikur eða lengur:

Sé dvöl launþega erlendis vegna tímabundinna almennra starfa þar á vegum íslensks launagreiðanda eiga reglur um erlenda dagpeninga ekki við en honum er þá heimilt að draga frá sérgreindum greiðslum, sem hann kann að hafa fengið vegna uppihalds, fjárhæð sem hæst getur orðið 30 SDR á dag í allt að þrjú ár. Skiptir ekki máli í þessu sambandi þótt launþegi komi í stuttar heimsóknir hingað til lands á umræddu tímabili.

Dagur 1-7 Dagur 8-30 Dagur 31-3 mánuðir Á dag umfram 3 mánuði
Flokkur 1:
Moskva, New York, Washington DC, Singapúr og Tókýó.
347 222 212 153
Flokkur 2:
Dublin, Istanbúl, Japan (nema Tókýó), London, Lúxemborg, Mexíkóborg og Seúl.
295 188 178 133
Flokkur 3:
Amsterdam, Aþena, Bandaríkin (nema New York og Washington DC), Barcelona, Brussel, Genf, Helsinki, Hong Kong, Kanada, Kaupmannahöfn, Madrid, Osló, París, Róm, Stokkhólmur og Vín
261 167 157 118
Flokkur 4:
Annars staðar
231 149 139 104
Hlunnindamat í staðgreiðslu 2009
Bifreiðahlunnindi – full og ótakmörkuð afnot

Fólksbifreið er launagreiðandi lætur starfsmanni sínum í té til fullra og ótakmarkaðra umráða skal meta starfsmanni til tekna óháð notkun hans á bifreið.

Með fólksbifreið er jafnframt átt við skutbifreið, jeppabifreið eða aðra bifreið sem hægt er að hafa sambærileg not af.

Bifreiðahlunnindi í staðgreiðslu reiknast af verðmæti bifreiðar skv. bifreiðaskrá viðkomandi tekjuárs. Sækja skal verð bifreiðar í bifreiðaskrá þess árs þegar bifreiðin var tekin í notkun og margfalda með verðbreytingastuðli viðkomandi árs.

Bifreið telst tekin í notkun:

  • á framleiðsluári ef notuð bifreið er flutt til landsins
  • á fyrsta skráningardegi samkvæmt skráningu hjá umferðastofu ef ónotuð bifreið er flutt til landsins

Sé bifreiðar ekki getið í bifreiðaskrá og ekki er unnt að fá upplýsingar um verð hennar annars staðar, skal miða við verð á sambærilegum bifreiðum.

Verð á hvers konar auka- eða sérútbúnaði bifreiðar kemur EKKI til viðbótar verði bifreiðar.

Dæmi um útreikning á bifreiðahlunnindum:

Launþegi með ótakmörkuð afnot af bifreið er tekin var í notkun á árinu 2004. Launagreiðandi greiðir rekstrarkostnað. Verðmæti kr. 1.500.000 skv. bifreiðaskrá 2004.

1.500.000 x 1,1373 (verðbreytingastuðull) = 1.705.950

1.705.950 x 21% = 358.250 kr. á ári

Greiði launamaður launagreiðanda sínum fyrir afnot og/eða rekstur bifreiðarinnar koma slíkar greiðslur til frádráttar tekjumatinu.

Nánari upplýsingar um bifreiðahlunnindi.

Bifreið tekin í notkun 2007-2009 Bifreið tekin í notkun 2004-2006 Bifreið tekin í notkun 2003 eða fyrr
Launagreiðandi greiðir rekstrarkostnað 26% 21% 18%
Launagreiðandi greiðir ekki rekstrarkostnað 20% 15% 12%
Takmörkuð afnot 92 kr./km.
Frá og með 1. janúar 2009 92 kr./km

Fólksbifreið er launagreiðandi lætur starfsmanni sínum í té til takmarkaðra afnota skal meta starfsmanni til tekna að svo miklu leyti sem hann notar bifreið í eigin þágu.

Með takmörkuðum afnotum er átt við að launamanni sé eingöngu heimilt að nota bifreið utan vinnutíma til aksturs milli heimilis og vinnustaðar og til einstakra tilfallandi afnota, enda sé hún að öðru leyti notuð í daglegum rekstri launagreiðanda.

Nánari upplýsingar um bifreiðahlunnindi.

Önnur hlunnindi
Morgunverður kr. 300
Hádegis- eða kvöldverður kr. 450
Fullt fæði á dag kr. 1.200
Íbúðarhúsnæði og orlofshús Meira
Lán Meira

Telja skal til tekna á kostnaðarverði fatnað sem látinn er starfsmanni í té. Þetta á þó ekki við um einkennisfatnað sem starfsmönnum er ætlað að nota við störf sín, eða annan þann fatnað sem auðkenndur er eða merktur launagreiðanda, og einkum er notaður vegna starfa í þágu hans.

Kveði lög eða stjórnvaldsfyrirmæli á um að launþegi skuli klæðast ákveðnum einkennisfatnaði við störf sín, til marks um handhöfn opinbers valds, eru slík afnot ekki metin til tekna.

Vaxtabætur og barnabætur
Vaxtabætur
Hámark vaxtabóta 2009 Hægt er að nálgast reiknivél á www.rsk.is

Vaxtagjöld af lánum vegna íbúðarhúsnæðis til eigin nota mynda stofn til vaxtabóta. Hér er átt við lán vegna:

  • kaupa á íbúðarhúsnæði
  • byggingar íbúðarhúsnæðis
  • verulegra endurbóta á íbúðarhúsnæði (á eingöngu við um lán frá Íbúðalánasjóði)
  • greiðsluerfiðleika, þ.e. lán sem sannanlega eru tekin til greiðslu á lánum sem notuð voru til öflunar íbúðarhúsnæðis.
  • kaupa á eignarhlut í almennri kaupleiguíbúð skv. 76. gr. laga nr. 97/1993.

Vaxtabætur greiðast eingöngu til þeirra sem bera fulla og ótakmarkaða skattskyldu hérlendis.

Ótakmörkuð skattskylda hvílir á þeim sem heimilisfastir/búsettir eru hér á landi og þeim er dvelja hér á landi lengur en samtals 183 daga á sérhverju 12 mánaða tímabili.

Vaxtabætur vegna þess árs þegar maður aflar sér íbúðarhúsnæðis og hefur ekki fengið greiddar vaxtabætur árið áður reiknast frá og með þeim ársfjórðungi sem fyrsta fasteignaveðlán vegna kaupanna er tekið. Skal hámark vaxtagjalda, tekjuskattsstofn og hámark vaxtabóta þá ákveðið hlutfallslega miðað við það.

Heimilt er að greiða ársfjórðungslega fyrirfram áætlaðar vaxtabætur til þeirra sem festa kaup á íbúðarhúsnæði til eigin nota. Sækja verður um fyrirframgreiðsluna til skattstjóra. Við álagningu að tekjuári liðnu fer fram endanleg ákvörðun á vaxtabótum fyrir tekjuárið.

Frestur til að sækja um fyrirframgreiðslu vaxtabóta er í einn mánuð eftir að ársfjórðungi lýkur.

  • Vegna 1. ársfjórðungs (jan., feb., mars) er frestur til 30. apríl
  • Vegna 2. ársfjórðungs (apr., maí, júní) er frestur til 31. júlí
  • Vegna 3. ársfjórðungs (júlí, ág., sept.) er frestur til 31. október
  • Vegna 4. ársfjórðungs (okt., nóv., des.) er frestur til 31. janúar

Fyrirframgreiðsla vaxtabóta er greidd ársfjórðungslega, fjórum mánuðum eftir lok hvers ársfjórðungs.

  • Vaxtabætur fyrir 1. ársfjórðung eru greiddar 1. ágúst
  • Vaxtabætur fyrir 2. ársfjórðung eru greiddar 1. nóvember
  • Vaxtabætur fyrir 3. ársfjórðung eru greiddar 1. febrúar
  • Vaxtabætur fyrir 4. ársfjórðung eru greiddar 1. maí

Vaxtabætur eru bæði tekju- og eignatengdar.

Áhrif tekna og eigna á vaxtabætur:

Stofn til útreiknings:

Vaxtagjöld til útreiknings vaxtabóta er sú fjárhæð sem lægst er af 1), 2) og 3).

  1. Vaxtagjöld skv. reit 87 og/eða 166 á framtali
  2. 7% af eftirstöðvum skulda skv. reit 41, 45 eða 167
  3. Hámark vaxtagjalda, sem er:
Einstaklingur kr. 554.364
Einstætt foreldri kr. 727.762
Hjón og sambúðarfólk kr. 901.158

Tekjutenging

Frá vaxtagjöldum skv. framansögðu dragast 6% af tekjustofni og er mismunurinn vaxtabætur, nema ef mismunurinn er hærri en hámark vaxtabóta og/eða ef kemur til skerðingar vegna eigna.

Tekjustofn til útreiknings vaxtabóta er frábrugðinn tekjuskattsstofni að því leyti að fjármagnstekjur eru meðtaldar og laun frá alþjóðastofnunum sem ekki eru skattlögð koma inn í tekjustofn til útreiknings á vaxtabótum.

Eignatenging

Vaxtabætur, eins og þær eru reiknaðar hér að ofan, skerðast ef eignir að frádregnum skuldum fara yfir mörk sem eru:

Hjá einstaklingi/einst. foreldri 7.119.124 kr.
Hjá hjónum/sambúðarfólki 11.390.599 kr.

Réttur til vaxtabóta fellur niður um leið og nettóeign verður:

Hjá einstaklingi/einst. foreldri 11.390.599 kr.
Hjá hjónum/sambúðarfólki 18.224.958 kr.
Einstaklingur kr. 246.944
Einstætt foreldri kr. 317.589
Hjón og sambúðarfólk kr. 408.374
Barnabætur
Ótekjutengdar barnabætur Hægt er að nálgast reiknivél á www.rsk.is

Um er að ræða heildargreiðslu fyrir árið sem skiptist jafnt milli hjóna/sambúðarfólks. Miðað er við fjölskyldustöðu í árslok 2008, en breytingar innan ársins hafa ekki áhrif.

Bætur skiptast í fjórar greiðslur yfir árið. (1. febrúar, 1. maí, 1. ágúst og 1. nóvember).

Með hverju barni yngra en sjö ára (fætt 2002 eða síðar) kr. 61.191
Tekjutengdar barnabætur – hámark

Barnabætur greiðast eingöngu til þeirra sem bera fulla og ótakmarkaða skattskyldu hérlendis.

Ótakmörkuð skattskylda hvílir á þeim sem heimilisfastir/búsettir eru hér á landi og þeim er dvelja hér á landi lengur en samtals 183 daga á sérhverju 12 mánaða tímabili.

Barnabætur skiptast í fjórar greiðslur yfir árið. Endanleg ákvörðun barnabóta fer fram við álagningu.

Fyrirframgreiðsla barnabóta upp í álagningu er greidd 1. febrúar og 1. maí. Fyrirframgreiðsla nemur samtals 50% af áætluðum barnabótum ársins. Við ákvörðun á fyrirframgreiðslu er tekið mið af upplýsingum úr staðgreiðsluskrá um launatekjur framfæranda og upplýsingum úr framtali fyrra árs.

Við uppgjör í ágúst er fyrirframgreiðslan dregin frá barnabótum eins og þær eru ákvarðaðar í álagningu. Eftirstöðvar eru greiddar út 1. ágúst og 1. nóvember.

Barnabætur skiptast jafnt á milli hjóna/sambúðarfólks. Miðað er við fjölskyldustöðu í árslok 2008, en breytingar innan ársins hafa ekki áhrif.

Dæmi um útreikning:

Hjón með tvö börn, 6 og 8 ára.

samanlagður tekjustofn 4.000.000 kr.
Skerðingarmörk vegna tekna 3.600.000 kr.
Stofn til skerðingar:
(tekjustofn- skerðingarmörk) 400.000 kr.
x 5%
Skerðing vegna tekna 20.000 kr.
Óskertar barnabætur
(152.331+180.323) 332.654 kr.
Skerðing vegna tekna -20.000 kr.
Viðbót v/barns innan 7 ára 61.191 kr.
Barnabætur verða samtals: 373.845 kr.
Hjón/sambúðarfólk
Með fyrsta barni kr.152.331
Með hverju barni umfram eitt kr. 181.323
Einstætt foreldri
Með fyrsta barni kr.253.716
Með hverju barni umfram eitt kr. 260.262
Skerðingarmörk – barnabætur skerðast séu tekjur umfram:

Hjá hjónum/sambúðarfólki reiknast skerðing vegna tekna af samanlögðum tekjustofni.

Hjón/sambúðarfólk 3.600.000
Einsætt foreldri 1.800.000
Skerðingarhlutfall þegar tekjur eru umfram framangreind skerðingarmörk:
Eitt barn 2,00%
Tvö börn 5,00%
Þrjú eða fleiri börn 7,00%

Einstaklingar

  • Helstu tölur
  • Staðgreiðsla opinberra gjalda
  • Álagning

Einstaklingar í rekstri

  • Staðgreiðsla opinberra gjalda

Lögaðilar

  • Staðgreiðsla opinberra gjalda

Vantar þig aðstoð?

Deila á Facebook