Forsíða  > Fyrirtækjaskrá  > Félög, stofnun og breytingar  > Hlutafélag
Veftré   A- A+

Stofnun og skráning hlutafélags (hf)

Sjá nánar í XVII. kafla hlutafélagalaga.

Stofngögn sem leggja þarf inn til skráningar eru auk tilkynningareyðublaðs, stofnsamningur, stofnfundargerð og samþykktir. Æskilegt er að stofngögn séu gerð í þremur eintökum; eitt fer til fyritækjaskrár ríkisskattstjóra, annað til viðkomandi skattstjóra í þeim tilvikum sem skylt er að tilkynna um starfsemi félagsins á virðisaukaskattsskrá og þriðja eintakið fyrir félagið sjálft.

Eftirfarandi er:

Lágmarkshlutafé skal vera 4.000.000 kr. Skal a.m.k. helmingur vera greiddur við stofnun félagsins þó aldrei lægra en 4.000.000 kr. Ef hlutafé er greitt í öðru en peningum skal koma staðfesting frá lögmanni eða löggiltum endurskoðanda um að viðkomandi eign sé til staðar. Stofnendur hlutafélags skulu vera tveir hið fæsta. Hlutir félags eru í höndum tveggja eða fleiri aðila.

Skila þarf inn útfylltu tilkynningarblaði til fyrirtækjaskrár ríkisskattstjóra ásamt stofngögnum þ.e.:

  • Samþykktum - undirrituðum af meirihluta stjórnar.
  • Stofnsamningi - undirrituðum af stofnendum.
  • Stofnfundargerð - undirritaðri af meirihluta félagsstjórnar eða staðfest af einhverjum sem hefur til þess heimild fyrir hönd félagsstjórnar.

Gæta þarf þess að:

  • Tilkynningarblað sé fyllt út í samræmi við stofngögn.
  • Rithandarsýnishorn séu rétt.
  • Allar undirskriftir séu réttar.

Tilkynningareyðublað skal undirritað af öllum stjórnarmönnum og skulu undirskriftir staðfestar af tveimur vottum, lögmanni, eða löggiltum endurskoðanda.

Kennitala verður til við skráningu félags. ÍSAT-númer (íslensk atvinnugreinaflokkun) er skráð við stofnun samkvæmt upplýsingum stofnenda um aðalstarfsemi félagsins.

Vantar þig aðstoð?

  • Senda fyrirspurn á fyrirtaekjaskra@rsk.is
  • Hringdu í fyrirtækjaskrá 563-1250

    Opið 9:30 - 15:30 virka daga

Deila á Facebook