Skráning í fyrirtækjaskrá og úthlutun á kennitölu
Hér er að finna leiðbeiningar og eyðublöð vegna skráningar í fyrirtækjaskrá og úthlutun á kennitölu.
Sameignarfélag
Sameignarfélag skal skrá hjá firmaskrá viðkomandi sýslumannsembætta. Ef sameignarfélag á að vera sjálfstæður skattaðili skal það tekið fram við skráningu. Hjón ein sér eða með ófjárráða börnum sínum geta ekki myndað sameignarfélag sem er sjálfstæður skattaðili.
Til að fá skráningu í fyrirtækjaskrá og úthlutun kennitölu skal koma með ljósrit af staðfestum skráningargögnum til fyrirtækjaskrár ríkisskattstjóra. Fyrirtækjaskrá skráir aðalstarfsemi fyrirtækis skv. upplýsingum frá eigendum og úthlutar ÍSAT-númeri (íslensk atvinnugreinaflokkun)
Skráning og úthlutun kennitölu fyrir sameignarfélag (eyðublað RSK 17.03)
Sjálfseignarstofnun með staðfesta skipulagsskrá.
Sýslumaðurinn á Sauðárkróki sér um skráningu á sjálfeignarstofnunum með staðfesta skipulagsskrá. Til að fá skráningu í fyrirtækjaskrá og úthlutun kennitölu þarf að skila inn skriflegri umsókn þar sem fram koma upplýsingar um nafn, tilgang, heimilisfang og forsvarsmann. Umsókninni þarf að fylgja afrit af skipulagsskránni eftir að hún hefur fengist staðfest af Sýslumanninum á Sauðárkróki.
Skráningargjaldið er kr. 5.000 sem hægt er að staðgreiða eða leggja inn á reikning RSK sem er 0515-26-723000 kt. 540269-6029. Staðfesting á greiðslu þarf að fylgja með.
Félög og fyrirtæki í eigu ríkis og sveitarfélaga sem ekki eru ehf/hf.
Skila þarf inn skriflegri umsókn þar sem fram koma upplýsingar um nafn, tilgang, heimilisfang og forsvarsmann. Ef stofnunin hefur verið stofnuð skv. lögum eða reglugerð þarf tilvísun í lögin/reglugerðina að fylgja með.
Skráningargjaldið er kr. 5.000 sem hægt er að staðgreiða eða leggja inn á reikning RSK sem er 0515-26-723000 kt. 540269-6029. Staðfesting á greiðslu þarf að fylgja með.
Annað
- RSK 17.01 - Félög, samtök og aðilar sem ekki stunda atvinnurekstur.
- Sýnishorn af samþykktum/lögum fyrir félagasamtök. - RSK 17.02 - Húsfélag íbúðarhúsnæðis
- RSK 17.04 - Erlend fyrirtæki vegna bankaviðskipta sem ekki eru með starfsemi á Íslandi
Sjá einnig stofnun félaga og um stofnun félaga (á vef viðskiptaráðuneytisins).
