Rafræn bókhaldskerfi
Rafrænir sölureikningar
Rekstraraðilar sem eru með rafræn bókhaldskerfi skv. reglugerð nr. 598/1999, um rafrænt bókhald, geymslu rafrænna gagna og lágmarkskröfur til rafrænna bókhaldskerfa, hafa heimild til að prenta út sölureikninga í einriti.
Fyrirliggjandi í bókhaldi þarf að vera undirrituð yfirlýsing, þess efnis að viðkomandi bókhaldskerfi uppfylli skilyrði ofangreindar reglugerðar, frá seljanda eða hönnuði viðkomandi bókhaldskerfis skv. 2. mgr. 11. gr. reglugerðarinnar. ( sjá sýnishorn)
- Sölureikningur sem á uppruna sinn í rafrænu bókhaldskerfi telst rafrænn sölureikningur hvort sem hann er sendur kaupanda á rafrænu formi eða prentaður á pappír fyrir kaupanda sem ekki er með rafrænt bókhaldskerfi.
- Ekki þarf að sækja um heimild til ríkisskattstjóra til að prenta rafrænan sölureikning á pappír í einriti.
- Ekki þarf fornúmerað reikningseyðublað til að prenta rafrænan sölureikning á.
- Prentað eintak rafræns sölureikings (á pappír) skal bera með sér að hann eigi uppruna sinn í rafrænu bókhaldskerfi skv. reglugerð nr. 598/1999, sbr. 4. mgr. 15. gr. reglugerðar nr. 50/1993, um bókhald og tekjuskráningu virðisaukaskattsskyldra aðila.
- Þessi áritun getur t.d. verið: Þessi reikningur á uppruna sinn í rafrænu bókhaldskerfi skv. reglugerð nr. 598/1999.
- Þessi áritun skal prentast á sölureikninginn við útprentun hans en ekki vera fyrirfram áprentuð á reikningseyðublaðið.
Undirritaðar yfirlýsingar frá seljendum/hönnuðum eftirfarandi bókhaldskerfa, þess efnis að þau uppfylli skilyrði reglugerðar nr. 598/1999, liggja fyrir hjá embætti ríkisskattstjóra:
- Agresso Business World - útgáfa 5.0 eða nýrri
- AKS - útgáfa 2,6 eða nýrri
- Alvís, útgáfa 4,5 eða nýrri
- Aspect/4
- CODA-Financials fjárhagsupplýsingakerfi
- dk viðskiptahugbúnaður - útgáfa 1,0 eða nýrri
- dkBúbót, útgáfu 1.00 eða nýrri
- FIBS (Fakta Internet Bókhald og Sölukerfi) - útgáfa 1,0 eða nýrri
- Fjölnir - útgáfa 354 og nýrri
- GARRI DOS Útg. 4.2
- GARRI Windows Útg. 1.00
- GÁT - útgáfa 2,0 eða nýrri
- Global 2000 - útgáfa 7.0 og nýrri
- Hotellinx - útgáfa 5.0 eða nýrri
- K-plus, útgáfa 72.1 eða nýrri
- Navision Attain - útgáfa 3.0 og nýrri
- Navision Axapta - útgáfa 1.5 og nýrri
- Navision Financials - útgáfa 1.0 og nýrri
- Navision XAL (Concord XAL) - útgáfa 2,1 og nýrri
- Netbókhald.is
- Notando.is
- Oracle E-Business Suite - útgáfa 11.5.4. eða nýrri
- Ópusallt 4.5 eða nýrra
- Ópusallt.NET útgáfa 2007 og nýrri
- Regla viðskiptakerfi
- Sage Pastel Partner, útgáfa 2004 og nýrri.
- Sage Pastel Xpress, útgáfa 2004 og nýrri
- SAP - útgáfa 4.0B og nýrri
- SAP Business One - útgáfa 6.20.24 SP:01 eða nýrri
- SFS 2001 - útgáfa 1.0.3 eða nýrri
- ShipNet, útgáfa 10.3 eða nýrri
- Stólpi fyrir Windows, útgáfa 2008.1 eða nýrri
- Tekjubókhald ríkisins (TBR), útgáfa 15.0 eða nýrri (Fjársýsla ríkisins)
- TOK útgáfa 2007 og nýrri
- TOK+ - útgáfa 1,0 og nýrri
- Touch-store - útgáfa 1.62 eða nýrri
- Vigor viðskiptahugbúnaður - útgáfa 3.100 og nýrri.
- Xbókhald.is
- X-carts 4.20 eða nýrri.
