Fæðishlunnindi - skattmat 2010
Fæði.
Fæði, sem launagreiðandi lætur starfsmanni og/eða fjölskyldu hans í té endurgjaldslaust, skal metið starfsmanninum til tekna sem hér segir:
| Morgunverður | 300 kr. |
| Hádegisverður eða kvöldverður | 450 kr. |
| Fullt fæði á dag | 1.200 kr. |
Ef um er að ræða börn yngri en 12 ára er heimilt að lækka framangreindar fjárhæðir um þriðjung.
