Önnur vélknúin ökutæki - skattmat 2010
Færa skal launþega til tekna umráð hans yfir öðrum vélknúnum ökutækjum launagreiðanda en bifreiðum, s.s. mótorhjólum, torfæruhjólum, vélsleðum, fjórhjólum og öðrum sambærilegum tækjum. Sé um slík umráð að ræða teljast þau ætíð full og ótak mörkuð.
Hafi launagreiðandi vélknúið ökutæki á leigu eða til láns og láti launþega það í té til umráða skulu þau metin launþeganum til tekna á sama hátt og ef tækið væri í eigu launagreiðandans, sbr. það sem hér fer á eftir.
Greiði launamaður launagreiðanda sínum sannanlega fyrir afnot tækisins koma slíkar greiðslur til frádráttar tekjumatinu.
Meta skal hlunnindin sem hlutfall af kaupverði tækis í hendi eiganda margfölduðu með verðbreytingarstuðli kaupárs þess, sbr. töflu í bifreiðaskrá, RSK 6.03, og upplýsingar á rsk.is, eða miða við staðgreiðsluverð nýs tækis sömu tegundar á staðgreiðsluárinu 2010 reynist það lægra. Sé tæki eigi til sölu hér á landi og eigi unnt að fá staðfestar upplýsingar um verð á því skal miða við verð á sambærilegu tæki.
| Ársumráð tækis skulu metin til tekna sem hlutfall af verði þess sem hér segir: | |
|---|---|
| Tæki, sem tekið var í notkun á árunum 2008, 2009 eða 2010 | 26% |
| Tæki, sem tekið var í notkun á árunum 2005, 2006 eða 2007 | 21% |
| Tæki, sem tekið var í notkun á árunum 2004 eða fyrr | 18% |
Greiði starfsmaður sjálfur rekstrarkostnað tækis sem hann hefur til umráða skal lækka hlutfall hlunninda um 6% af hlunnindamatsverði þess, sbr. að framan. Með rekstrarkostnaði í þessu sambandi er átt við eldsneytiskostnað, smurningu, þrif o.þ.h. Lækkun á hlunnindamati af þessum sökum verður aldrei meiri en 6% af verði tækisins.
