Forsíða  > Um RSK  > Embættið  > Um embættið
Veftré   A- A+

Um embætti ríkisskattstjóra.

Embætti ríkisskattstjóra er miðlægt stjórnvald sem starfar samkvæmt lögum og fyrirmælum ráðherra, sem sett eru lögum samkvæmt. Meginhlutverk þess er yfirstjórn skattastjórnsýslu, þ.e. að móta og stýra skattframkvæmd og hafa eftirlit með störfum skattstjóra, sjá um tæknilega skattframkvæmd og fara með yfirstjórn skatteftirlits. Embættinu eru jafnframt falin ýmis önnur verkefni. Hlutverk þess má flokka nánar sem hér segir:

Lagatúlkun og samræming

Ríkisskattstjóri fer með túlkun réttarheimilda á sviði skattaréttar og setningu framkvæmda- og starfsreglna. Hann hefur eftirlit með störfum skattstjóra og gerir ráðstafanir til þess að samræmi sé í ákvörðunum þeirra. Hann kemur fram fyrir hönd ríkissjóðs og annarra gjaldkrefjenda gagnvart yfirskattanefnd og veitir umsagnir í dómsmálum sem snúast um skattlagningu. Ríkisskattstjóri gefur bindandi álit í skattamálum um túlkun skattalaga skv. landsrétti og svarar fyrirspurnum almennings um túlkun skattalaga. Hann sér um að gildandi reglur og réttarheimildir í skattarétti á hverjum tíma séu aðgengilegar almenningi og starfsmönnum skattkerfisins. Hann annast beiðnir um endurupptöku skattamála og sér um endurákvörðun skatta í málum sem til hans er beint. Ríkisskattstjóri kemur fram fyrir hönd íslenskra skattyfirvalda sem bært stjórnvald um framkvæmd tvísköttunarsamninga gagnvart öðrum samningsaðilum og annast samskipti við erlend stjórnvöld hvað skattastjórnsýslu varðar.

Skattframkvæmd og þjónusta

Ríkisskattstjóri hefur með höndum umsjón skattframkvæmdar og annast alla þá starfsemi sem nauðsynleg er í þeim tilgangi. Hér undir fellur að annast undirbúning og hafa umsjón með álagningu skatta, endurskoða vinnubrögð og hafa frumkvæði að bættu vinnulagi og þjónustu við viðskiptavini skattkerfisins. Hann hefur yfirumsjón með staðgreiðslu opinberra gjalda og tryggingagjalds. Ríkisskattstjóri ber ábyrgð á uppbyggingu, rekstri, viðhaldi og tæknilegri framþróun upplýsingakerfa skattsins og sér um öflun og varðveislu upplýsinga, sem notaðar eru við álagningu skatta, og miðlun þeirra til skattstjóra og framteljenda. Þá annast ríkisskattstjóri ýmsar sameiginlegar þarfir skattkerfisins, s.s. rekstur og viðhald vélbúnaðar, sameiginlegt skrifstofukerfi, prentun og dreifingu gagna til viðskiptavina skattsins o.fl. Ríkisskattstjóri leggur á olíugjald, kílómetragjald, bifreiðagjald, úrvinnslugjald á ökutæki og áfengisgjald og hefur með höndum eftirlit með starfsemi áfengisframleiðenda.

Skatteftirlit

Starfsemi ríkisskattstjóra tekur til yfirstjórnar skatteftirlits, samræmingar þess og eftirlits með störfum skattstjóra á því sviði. Hann gerir áætlanir um skatteftirlit, sér um áhættugreiningu og ákveður áherslur í skatteftirliti. Ríkisskattstjóri sér um öflun eftirlitsupplýsinga, úrvinnslu og varðveislu þeirra og miðlun til skattstjóra og annast greiningu á eftirlitsþörf og fer með skatteftirlit í einstökum málum að eigin vali eða að óskum skattstjóra. Ríkisskattstjóri hefur frumkvæði að þróun eftirlitsaðferða og mótun eftirlitsstefnu skattkerfisins á hverjum tíma. Hann annast móttöku og miðlun eftirlitsupplýsinga milli landa. Hann fylgist með framkvæmd og árangri af skatteftirliti og gerir árlega skýrslu um það til fjármálaráðherra.

Fyrirtækjaskrá, ársreikningar o.fl.

Ríkisskattstjóri sér um starfrækslu fyrirtækjaskrár, þ. á m. hlutafélagaskrár, annast skráningu atvinnustarfsemi og ýmis konar félagastarfsemi og veitir upplýsingar úr þeim skrám. Hann sér einnig um starfrækslu ársreikningaskrár, söfnun ársreikninga og miðlun þeirra til almennings svo og eftirlit með beitingu alþjóðlegra reikningsskilastaðla. Þá hefur hann með höndum eftirlit með því að iðgjöld séu greidd skv. lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða og annast eftirlit með greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði.

Fræðsla, upplýsingamiðlun og ráðgjöf

Ríkisskattstjóri hefur með höndum kennslu um skatta og skattframkvæmd fyrir starfsmenn skattkerfisins og almenna fræðslu og leiðbeiningar um skattamál fyrir almenning. Hann skal kynna starfsemi skattkerfisins fyrir almenningi og efla virðingu fyrir skattframkvæmd. Hann safnar upplýsingum um starfsemi embættisins og skattkerfisins í heild og álagningu skatta og gjalda og hefur þær aðgengilegar fyrir stjórnvöld og aðra sem eftir þeim leita.

Vantar þig aðstoð?

Deila á Facebook