Vefframtal lögaðila 2012
Búið er að opna framtöl lögaðila 2012 á þjónustuvefnum skattur.is. Bæði skattframtal lögaðila RSK 1.04 og framtal fyrir óskattskyld félög RSK 1.06, ásamt öllum fylgiskjölum.
Öll félög sem stofnuð voru á árinu 2011 hafa nú fengið sendan veflykil frá ríkisskattstjóra til að nota við framtalsskil. Veflyklar annarra félaga eru óbreyttir frá fyrra ári. Veflyklarnir eru einnig notaðir til rafrænna skila á ársreikningum, sem og launamiðum, hlutafjármiðum og verktakamiðum, hvort sem skilað er beint úr launa- eða bókhaldskerfi eða með því að skrá miða á skattur.is.
