Innleiðing nýrrar tegundar tollskýrslu á Íslandi – móttöku eldri skýrslu hætt 1. október 2021
Vakin er athygli inn- og útflytjenda sem senda tollskýrslur til tollafgreiðslu hjá Skattinum úr viðskiptakerfum sínum með EDI samskiptum (SMT tollafgreiðsla) á að unnið er að innleiðingu nýrrar tegundar tollskýrslu á Íslandi svokallaðrar SAD tollskýrslu.
Móttöku eldri innflutningsskýrslu (E1) verður hætt 1. október 2021. Frá og með þeim degi verður eingöngu tekið við SAD skýrslum (E2). Leiðréttingar á eldri E1 skýrslum verða þó áfram gerðar á pappír eins og áður.
Á undanförnum árum hefur verið unnið að smíði og innleiðingu nýs tollakerfis. Kerfið er nú þegar í rekstri en innleiðing þess er gerð í áföngum. Hlutar eldra tollakerfis verða reknir samhliða þar til innleiðingu þeirra í nýtt kerfi verður að fullu lokið.
Nýja skýrslan er sama form tollskýrslu og notað er á EES svæðinu og víðar og nefnist SAD eða Single Administrative Document.
- Árið 2019 var nýtt veftollafgreiðslukerfi fyrir smærri innflytjendur opnað en allar innflutnings tollskýrslur úr því eru á þessu nýja SAD formi.
- Nýtt tollalínukerfi sem veitir inn- og útflytjendum aðgang að gögnum sínum í tollkerfum Skattsins var jafnframt gangsett á árinu 2019.
- Árið 2020 var í gangi tilraunaverkefni með einu hugbúnaðarhúsi og einum tollmiðlara sem sendir nú þegar innflutningsskýrslur á SAD formi með EDI samskiptum.
- Á þessu ári var tekið við fyrstu SAD skýrslunni beint úr viðskiptakerfi innflytjanda og sendir sá aðili nú allar skýrslur á því formi.
- Stefnt er að því að innleiðingu SAD skýrslu með EDI samskiptum ljúki á þessu ári. Fyrst innflutningur og síðan útflutningur.
- Hugbúnaðarhús eru nú þegar farin að vinna við uppfærslu á kerfum sínum og prófanir á móti kerfi Skattsins eru hafnar.
Uppfærð kerfi hafa ýmsa kosti m.a.:
- Leiðrétting skýrslu (Afgreiðsla 2) verður rafræn
- Bráðabirgðaafgreiðslur verða rafrænar
Framleiðendur og seljendur hugbúnaðar til tollskýrslugerðar munu uppfæra hugbúnað sem þeir þjónusta og selja í samráði við viðskiptavini sína.
Notendur veftollafgreiðslukerfis Skattsins senda núna SAD skýrslur og þurfa því ekkert að gera.