Áhersluatriði í eftirlit ársreikningaskrár vegna reikningsársins 2017
Eftirlit ársreikningaskrár á árinu 2018 vegna reikningsársins 2017 mun sérstaklega beinast að eftirfarandi þáttum:
- áhersluatriðum Verðbréfaeftirlits Evrópu (ESMA) við eftirlit með reikningsskilum byggðum á alþjóðlegum reikningsskilastöðlum (IFRS),
- ófjarhagslegum upplýsingum í reikningsskilum eininga tengdum almannahagsmunum og móðurfélögum stórra samstæða,
- hvort texti reikningsskila sem samþykkt eru á aðalfundum sé á íslensku og
- hvort félag birti fjórdálksreikning í stað aðgreinds ársreiknings móðurfélags og samstæðureiknings.
Ársreikningaskrá hvetur forsvarsmenn félaga sem falla undir lög nr. 3/2006 um ársreikninga, endurskoðendur þeirra og eftir atvikum skoðunarmenn, til að kynna sér meðfylgjandi minnisblað um áhersluatriði í eftirliti ársreikningaskrár vegna reikningsársins 2017. Meðfylgjandi er minnisblað ársreikningaskrár , fréttatilkynning og opinber yfirlýsing frá ESMA um áhersluatriði í eftirliti með félögum sem beita IFRS og að auki leiðbeinandi reglur frá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins um ófjárhagslega upplýsingagjöf.