Reglugerð framkvæmdastjórnar ESB nr. 1255/2012
Hinn 23. október 2013 tóku gildi breytingar á fjórum alþjóðlegum reikningsskilastöðlum.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1255/2012 varðar eftirtalda reikningsskilastaðla:
- IFRS 13 um gangvirðismat
- IFRIC 20 um kostnað við hreinsun úrgangsefna á framleiðslustigi í yfirborðsnámu
- IFRS 1 um innleiðing alþjóðlegra reikningsskilastaðla
- IAS 12 um tekjuskatta.
Ársreikningaskrá hvetur þá sem beita alþjóðlegum reikningsskilastöðlum (IFRS) við gerð og framsetningu reikningsskila sinna að kynna sér reglugerð iðnaðar- og viðskiptaráðherra nr. 941/2013, reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1255/2012, staðalinn IFRS 13, túlkun IFRIC 20 og breytingar á stöðlunum IFRS 1 og IAS 12.