Tilkynning frá ársreikningaskrá
Ársreikningur og samstæðureikningur Jarðborana hf. fyrir reikningsárið sem lauk 31. desember 2014
Við skoðun á ársreikningi og samstæðureikningi félagsins Jarðborana hf., fyrir reikningsárið sem lauk 31. desember 2014, kom í ljós verulegt frávik frá ákvæðum 39. gr. staðalsins IAS 39 Fjármálagerningar: færsla og mat, þess efnis að skuldara beri að afskrá fjárskuld, í heild eða hluta, þegar og því aðeins að hann hafi losnað undan skuldbindingunni.
Hinn 26. maí síðastliðinn ákvarðaði ársreikningaskrá að félagið skyldi birta, á vef ríkisskattstjóra, viðbótarupplýsingar þar sem fram kæmi hver fjárhagsleg áhrif á reikningsskil félagsins voru jafnframt því að leiðrétta samanburðarfjárhæðir í reikningsskilum ársins 2015 í samræmi við ákvæði alþjóðlegra reikningsskilastaðla.
Stjórnendur Jarðborana hf. hafa fallist á að hlíta ákvörðun ársreikningaskrár og fylgir með tilkynningu þessari yfirlýsing þess efnis, undirrituð af stjórnarformanni Jarðborana hf. og endurskoðanda félagsins.