Aðgerðir vegna kórónuveirufaraldursins – yfirlit
Skattinum hefur verið falin framkvæmd á ýmsum úrræðum sem stjórnvöld hafa gripið til vegna kórónuveirufaraldursins og aðgerða vegna hans, s.s. stöðvun á tiltekinni starfsemi.
Um er að ræða fjölmörg atriði, t.d. lokunarstyrki, stuðning vegna
greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti, sérstakan barnabótaauka, meiri
heimildir til endurgreiðslna á virðisaukaskatti, frestun á ýmsum greiðslum án
álags og dráttarvaxta, heimild til að taka út séreignarsparnað og fleira. Búið
er að taka saman yfirlit yfir stöðu þeirra helstu aðgerða sem Skatturinn sér um
framkvæmd á miðað við fyrri hluta október.