Frestur til að skila ársreikningi rennur út 31. ágúst nk.
Ársreikningi ber að skila eigi síðar en mánuði eftir að reikningurinn var samþykktur á aðalfundi félags, þó eigi síðar en átta mánuðum eftir lok reikningsárs.
Sérstök athygli er vakin á að skili félag ársreikningi síðar en mánuði eftir aðalfund verður félagið sektað.
Athugið hvort ársreikningi hafi verið skilað
Opinber birting
Senda skal inn til opinberrar birtingar þann ársreikning sem staðfestur var á aðalfundi viðkomandi félags. Ársreikningur sem sendur er til opinberrar birtingar skal vera óbreyttur þeim sem samþykktur var á aðalfundi.
Hnappurinn
Örfélög geta nýtt sér Hnappinn og látið Skattinn útbúa ársreikning félagsins að því tilskyldu að skattframtali hafi verið skilað inn. Ekki er heimilt að staðfesta hefðbundinn ársreikning á aðalfundi en senda svo inn hnappsreikning í stað þess sem samþykktur var á aðalfundi.
Sekt vegna vanskila
Sekt vegna vanskila nemur 600.000 krónum.
Enginn pappír
Öll félög sem falla undir gildissvið ársreikningalaga þurfa að skila ársreikningi með rafrænum hætti í gegnum þjónustuvef Skattsins. Ekki er lengur tekið við ársreikningum á pappír.