Gistináttaskattur tekinn upp að nýju
Gistináttaskattur kemur aftur til framkvæmda frá og með 1. janúar 2024. Skatturinn var afnumin tímabundið vegna heimsfaraldurs kórónaveiru. Frá áramótum verður hann lagður á að nýju, þó í nokkuð breyttri mynd.
Gistináttaskattur er lagður á gistingu sem er seld til
skemmri tíma t.d. á hótelum, farfuglaheimilum og tjaldsvæðum. Framvegis mun
gistináttaskattur einnig taka til gistingar um borð í skemmtiferðaskipum. Fjárhæðir
skattsins hafa tekið breytingum og eru nú þrepaskiptar eftir tegund seldrar
gistiaðstöðu.
Fjárhæð skattsins:
Fyrir sölu á gistiaðstöðu skal frá áramótum innheimta gistináttaskatt sem hér segir:
- Hótel, gistiheimili og samskonar gististaðir - 600 kr.
- Tjaldstæði og vegna stæða fyrir húsbíla, tjaldvagna, fellihýsi og hjólhýsi - 300 kr.
- Fyrir gistiaðstöðu um borð í skemmtiferðaskipi á meðan það dvelur í höfn hér á landi eða annars staðar á tollsvæði ríkisins – 1.000 kr.
Ef seljandi gistiþjónustu er virðisaukaskattsskyldur myndar gistináttaskatturinn jafnframt stofn til virðisaukaskatts.
Uppgjör gistináttaskatts
Allur gistináttaskattur er nú gerður upp á tveggja mánaða fresti hjá öllum gjaldskyldum aðilum.
Skemmtiferðaskip skulu innheimta gistináttaskatt þær nætur sem það er innan tollsvæðis Íslands og er gjalddagi þegar að skip yfirgefur tollsvæðið.
Skráning á gistináttaskattsskrá
Endurskráning
Þeir aðilar sem voru á gistináttaskattsskrá áður en hann var afnuminn tímabundið þurfa að skrá sig á skrána á nýjan leik.
Skráning verður gerð með rafrænum hætti á þjónustuvef Skattsins. Unnið er að því að opna fyrir skráninguna og verður tilkynnt sérstaklega á vef Skattsins þegar hún opnar.
Nýskráning
Nýir rekstraraðilar sem skattskyldir eru samkvæmt lögum um gistináttaskatt skulu senda Skattinum tilkynningu um starfsemi sína og öðlast þannig skráningu á gistináttaskattsskrá.
Skráning verður gerð með rafrænum hætti á þjónustuvef Skattsins. Unnið er að því að opna fyrir skráninguna og verður tilkynnt sérstaklega á vef Skattsins þegar hún opnar.
Sala gistináttaeiningar fyrir áramót undanþegin gistináttaskatti
Gisting sem seld hefur verið fyrir áramót en er afhent á árinu 2024 eða síðar er undanþegin gistináttaskatti hafi hún verið fullgreidd og sölureikningur gefinn út.
Ekki nægir að reikningur, eða kvittun, hafi verið gefinn út vegna hluta af söluverði gistingar.