Lokaskiladagur skattframtals lögaðila er 2. október nk.
Nú styttist í lokaskilafrest skattframtals lögaðila vegna rekstrarársins 2019, en álagning lögaðila fer fram 30. október nk.
Framtal 2020
Vakin er athygli á að lokaskiladagur lögaðila á skattframtali 2020 er 2. október nk. Ekki er tryggt að framtöl sem berast eftir skilafrest fái skoðun fyrr en eftir að álagning fer fram 30. október nk. og eru forsvarsmenn lögaðila hvattir til að senda framtöl inn sem allra fyrst.
Nánari upplýsingar um framtal og álagningu lögaðila 2020
Hnappurinn
Forsvarsmönnum örfélaga er sérstaklega bent á að kynna sér „Hnappinn“, en það er einföld og þægileg lausn fyrir smærri félög til að skila ársreikningi. Eftir að örfélag hefur skilað inn skattframtali er hægt að útbúa sjálfkrafa ársreikning sem byggður er á upplýsingum úr skattframtalinu.