Opið fyrir umsóknir um veitingastyrk
Búið er að opna fyrir umsóknir um veitingastyrki samkvæmt lögum nr. 8/2022. Veitingastyrkur er greiddur vegna veitingarekstrar á tímabilinu nóvember 2021 til og með mars 2022 til þeirra sem sætt hafa takmörkunum á opnunartíma. Umsókn þarf að berast eigi síðar en 30. júní 2022.
Rekstraraðilar sem starfrækja veitingastað í flokki II eða III skv. 4. gr. laga nr. 85/2007, um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, og staður þar sem selt er áfengi, og eftir atvikum matur, til neyslu á staðnum sem heyrir undir rekstrarleyfi gististaðar í flokki IV skv. 3. gr. sömu laga geta eftir atvikum sótt um veitingastyrk.
Rekstraraðili þarf að hafa fengið rekstrarleyfi fyrir 1. desember og sætt takmörkun á opnunartíma í þeim almanaksmánuði sem umsókn varðar vegna opinberra sóttvarnaráðstafana til að geta átt rétt á veitingastyrk. Jafnframt þarf starfsemi af því tagi sem um ræðir að hafa byrjað fyrir 1. desember 2021. Þá þarf tekjufall sem rekja má til heimsfaraldurs kórónuveiru að hafa verið a.m.k. 20% auk þess sem uppfylla þarf ýmis önnur skilyrði.
Veitingastyrkur er greiddur vegna rekstrar á tímabilinu nóvember 2021 til og með mars 2022.
Eins og áður er sótt um á þjónustuvef Skattsins. Ef umsækjandi um veitingastyrk er félag (lögaðili) skráir prókúruhafi sig inn á sína þjónustusíðu og fer þannig inn á svæði félagsins. Sjálfstætt starfandi einstaklingur fer inn í umsóknina í gegnum sína eigin þjónustusíðu. Leiðbeiningar við umsókn eru á COVID-19 síðum Skattsins en umsóknin er alveg sambærileg við umsóknir um fyrri covid styrki.
Umsókn um veitingastyrk þarf að berast eigi síðar en 30. júní 2022.