Fréttir og tilkynningar


Ríkisskattstjóri er stofnun ársins 2016

17.5.2016

Annað árið í röð er ríkisskattstjóri stofnun ársins í árlegri könnun SFR

Könnun á ríkisstofnun ársins er nú gerð í ellefta sinn og varð ríkisskattstjóri í fyrsta sæti, af 76 stofnunum, í flokki stofnana með fleiri en 50 starfsmenn.
Stofnun ársins 2016Embætti ríkisskattstjóra hefur tekið þátt í þessari könnun frá byrjun og hefur síðastliðin níu ár verið í einum af fimm efstu sætunum í sínum flokki:

2016 - 1. sæti
2015 - 1. sæti
2014 - 2. sæti
2013 - 4. sæti
2012 - 3. sæti
2011 - 2. sæti
2010 - 5. sæti
2009 - 2. sæti
2008 - 1. sæti
2007 - 56. sæti
2006 - 45. sæti

Nánari upplýsingar um könnunina má nálgast á vef SFR


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum