Sérstakur barnabótaauki greiddur út 1. júlí
Alþingi hefur þann 24. maí sl. samþykkt að greiða aukalega sérstakan barnabótaauka 1. júlí næstkomandi sem hluta af mótvægisaðgerðum vegna verðbólgu.
Barnabótaauki að fjárhæð
20.000 verður greiddur með hverju barni til þeirra sem fengu ákvarðaðar
barnabætur við álagningu einstaklinga 2022. Fjárhæðinni verður skipt jafnt milli hjóna og sambúðarfólks.
Sérstökum barnabótaauka verður ekki skuldajafnað á móti opinberum gjöldum til ríkissjóðs, opinberum gjöldum til sveitarfélaga og vangreiddum meðlögum til Innheimtustofnunar sveitarfélaga.